Ung vinstri græn
Pistlar

10.10.2003 Anna Tryggvadóttir

Vændi er vandamál

Á síðasta kjörtímabili lögðu þingmenn VG ítrekað fram frumvarp um breytingar á lögum sem snúa að vændi. Frumvarpið fékk ekki stuðning frá öðrum þingmönnum og var fellt í hvert skipti. Sem betur fer virðist sem þingmönnum VG hafi tekist að koma vitinu fyrir hina stjórnarandstöðuflokkana auk Framsóknarflokks, þar sem 14 þingkonur úr þeim flokkum hafa tekið sig saman og lagt fram sama frumvarp, í lítið eitt breyttri mynd.

Frumvarpið snýst aðallega um að kaup á vændi verði gerð refsiverð og að refsibyrði verði aflétt af þeim sem stunda vændi. Líkt frumvarp var gert að lögum í Svíþjóð fyrsta janúar 1999 og hefur reynst mjög vel. Einnig stendur til að breyta orðalagi í lögum og koma inn orðinu vændi í staðinn fyrir lauslæti, sem er orðið sem nú notað er um vændi í lögunum. Orðalagsbreytingar í lögum virðast kannski vera smáatriði en þær eru mikilvægar að því leyti að þær endurspegla hugarfar þeirra sem standa að réttarkerfinu og eiga þess vegna að endurspegla viðhorf samfélagsins.

Vitundarvakning hefur orðið að undanförnu varðandi vændi á Íslandi og má hana þakka ýmsum aðilum, meðal annars VG sem hefur hingað til verið eini flokkurinn sem sýnt hefur vilja til úrbóta á lögunum í verki. Mikið vantar þó upp á að fólk geri sér grein fyrir alvöru málsins og skilji að vændi er stórt vandamál á Íslandi.

Ung vinstri græn ætla leggja sitt af mörkum til að vekja fólk til umhugsunar um vændi og nauðsyn þess að bæta úr stöðu sem einstaklingar sem stunda vændi eru í. Ungt fólk ætlar að safnast saman á morgun, laugardag, klukkan 12 á hádegi á Hlemmi, ganga niður Laugaveginn að Kolaportinu og þannig sýna stuðning sinn við frumvarpið í verki. Þetta verður gert með gjörningi sem miðast að því að sýna á leikrænan hátt nöturlegar aðstæður fólks sem stundar vændi, óréttlætið sem býr í núverandi lögum og þagnarmúrinn sem umlykur vændi á Íslandi.

Þeir einstaklingar sem hafa áhuga á því að taka þátt í gjörningnum geta sent tölvupóst á annatagada@hotmail.com til að fá frekari upplýsingar um framkvæmd hans. Allir aðrir geta sýnt stuðning við frumvarpið með því að ganga samhliða okkur á morgun.

Anna Tryggvadóttir

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica