Ung vinstri græn
Pistlar

8.10.2003 Finnur Dellsén

Enn af prakkarastrikum Berlusconis

Undirritaður hefur áður vakið máls á stjórnarháttum Silvios Berlusconis, forsætisráðherra Ítalíu. Til upprifjunar og almennrar glöggvunar má nefna að hinn viðkunnanlegi Silvio er ríkasti maður Ítalíu, sem er kannski ekki að furða því hann á stóran hlut í flestum iðnfyrirtækjum landsins auk þess sem stærstu auglýsingastofur, kvikmyndahús og fjölmiðlasamsteypur landsins eru margar hverjar í hans eign.

Fjölmiðlafyrirtækin hafa eflaust verið mjög hjálpsöm í kosningabaráttunni. Það hefur heldur ekki spillt fyrir að Berlusconi ákvað að gefa öllum fjölskyldum landsins eintak af ævisögu sinni rétt fyrir kosningar. Minnir að vísu dálítið á nýjan eiganda Chelsea liðins, Roman Abrahamovich, sem vann ríkisstjórakosningarnar í Chukotka með því að lofa að senda öll börn héraðsins í sumarleyfi til Svarta hafsins. En nú er Chukotka-hérað orðið gjaldþrota og íbúarnir margir hverjir eru farnir að selja húsin sín fyrir auma 300 dollara, sem er ótrúlegt en satt, nákvæmlega jafn mikið og fargjaldið til Moskvu kostar í Chukotka.

Silvio Berlusconi hefur reyndar ekki heldur tekist að kaupa sig útúr vandræðum stjórnar sinnar. Klaufagang stjórnarinnar í utanríkismálum þarf vart að minnast frekar á, en ástandið er þaðan af verra í innanríkismálum.

Með reglulegu millibili sameinast verkalýðsfélög Ítalíu til að mótmæla efnahags- og atvinnumálastefnu stjórnarinnar, gríðarlega fjölmenn verkföll hafa verið gerð og mótmælagöngur farnar. Það er heldur ekki að furða þegar forsætisráðherrann setur lög svo að ekki sé hægt að ákæra hann í ýmsum málum, þ.á m. þekktu morðmáli.

Nýjasta prakkarastrik Berlusconsi er af svipuðum toga og áður. Í síðustu viku hugðist Berlusconi koma í gegnum þingið fjölmiðlalöggjöf sem myndi gera forsætisráðherranum kleift að styrkja stoðir sínar í fjölmiðlaheiminum á Ítalíu enn frekar. Og þótt stjórnarandstæðingum, með hjálp nokkurra stjórnarþingmanna, hafi tekist að tefja málið um nokkra mánuði, er útlit fyrir að lögin verði samþykkt og Berlusconi takist að verða jafnvel enn áhrifameiri í ítölskum fjölmiðlum.

Finnur Dellsén

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica