Ung vinstri græn
Pistlar

7.10.2003 Katrín Jakobsdóttir

Alltaf í ruglinu

Þegar þing var sett í síðustu viku var ekki laust við að maður hugsaði: „Ó, nei, þarf maður nú að þola fjögur ár af þessu rugli í viðbót.“ Umhugsað rugl í mínum huga var áframhaldandi seta þessarar ríkisstjórnar og það rugl sem hún stendur fyrir. Rugl á borð við sparnað í mennta- og heilbrigðiskerfi, rugl eins og einkavæðing almannafyrirtækja, rugl eins og GATS-samningarnir sem miða að því að einkavæði veitukerfi landsmanna, rugl eins og verksmiðjuvæðing Íslands á 21. öld og rugl eins og að færa kaup og kjör verkamanna aftur til 19. aldar. Í stuttu máli sagt rugl á rugl ofan.

Og ekki batnaði tilfinningin þegar formaður Samfylkingarinnar gægðist yfir pontuna og sagði: „Jæja, nú ætlar Samfylkingin að vera með þá nýbreytni að vera bara ekkert í stjórnarandstöðu.“ Svo bætti hann ábyggilega einhverju við um að þau væru nú orðin svo stór flokkur að þau þyrftu varla að gera neitt. Nema vera stór, auðvitað.

Bíddu nú við, hugsaði ég. Nýbreytni getur þetta nú varla verið því að ekki man ég eftir miklum afrekum Samfylkingarinnar í stjórnarandstöðu á síðasta kjörtímabili. Hvernig var það nú með stríðið í Afganistan, var formaður hennar ekki fylgjandi því? Og Kárahnjúkavirkjun studdi nánast allur þingflokkur Samfylkingarinnar. Og ekki voru þingmenn hennar fylgjandi þjóðaratkvæðagreiðslu um málið þó að aukið lýðræði og fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur dúkkuðu óvænt upp sem kosningamál fyrir þingkosningarnar. Sem sagt ruglið heldur áfram, hjá stjórn og flokkunum sem eru of stórir til að vera í stjórnarandstöðu. En eitthvað virðist Samfylkingunni hafa fundið þessar yfirlýsingar formannsins ekki alveg nógu góðar ef marka má landsfund Ungra jafnaðarmanna þar sem samþykkt var a.m.k. ein ályktun sem minnti á stjórnarandstöðu, þ.e. ályktun um að gera kaup á vændi refsiverð. Frá henni var skilmerkilega sagt í Ríkisútvarpinu enda má fólk nú ekki halda að Samfylkingin ætli að eyða öðru kjörtímabili í að vera hvorki í stjórn né stjórnarandstöðu og hlaut landsfundur UJ þar umtalsvert meiri athygli en landsþing SUS og UVG sem teljast auðvitað hefðbundnir stjórnar- og stjórnarandstöðuflokkar.

En það skemmtilega við ályktun UJ er að þingmenn VG hafa einmitt ítrekað lagt fram frumvörp á þingi þar sem einmitt þetta er lagt til. Síðast þegar þetta frumvarp var lagt fram sáu þingmenn Samfylkingarinnar sér ekki annað fært en að hafna því eða styðja það ekki, líklega af því að ekki vildu þeir vera í stjórnarandstöðu, þannig að nú kveður við nýjan tón, kannski af því að nú ætla þeir að veðja á að andstaðan skili þeim einhverju. Ég óttast hins vegar að þetta kjörtímabil verði óttalega keimlíkt hinu fyrra.

Katrín Jakobsdóttir

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica