Ung vinstri græn
Pistlar

6.10.2003 Steinunn Þóra Árnadóttir

Fastir liðir - eins og venjulega?

Síðustu daga hefur talsvert borið á fréttum þar sem sagt er frá múr sem Ísraelsmenn eru að reisa utan um byggðir sínar á Vesturbakkanum. Múrinn virðist illa þokkaður af flestum öðrum en Ísraelsmönnum sjálfum og hafa ýmsir orðið til þess að líkja honum við Berlínarmúrinn og þann aðskilnað sem stjórnvöld í Suður-Afríku beittu þegna sína.

Ísraelsk stjórnvöld réttlæta byggingu múrsins með því að segja að hann sé nauðsynlegur til þess að vernda ísraelska borgara fyrir palestínskum hryðjuverkamönnum. Palestínumenn og ýmis mannréttindasamtök telja hins vegar að megintilgangurinn sé að innlima landsvæði Palestínumanna inn í Ísraelsríki og að búa til varanleg landamæri sem skilji á milli þjóðanna tveggja. Og hvað sem öðru líður er ljóst að múrinn kemur í veg fyrir að Palestínumenn geti farið frjálsir ferða sinna um land sem áður var þeirra.

Að vanda fylgist alþjóðasamfélagið með því sem er að gerast í Palestínu og hefur framferði Ísraelsmanna verið harðlega gagnrýnt. Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna hefur til að mynda sagt byggingu múrsins brot á alþjóðalögum og Bandaríkjastjórn hefur lýst sig alfarið andvíga framkvæmdinni.

En eins og svo oft áður virðist ekkert meira ætla að gerast. Alþjóðasamfélagið lætur vanþóknun sína í ljós með skýrslum og ályktunum og lætur nægja að brýna ísraelsk stjórnvöld til að breyta framkomu sinni gagnvart Palestínumönnum. Allir eru sammála um að ástandið sé óviðunandi en ekkert gerist. Og á meðan rís múrinn.

Steinunn Þóra Árnadóttir

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica