Ung vinstri græn

Pistlar

27.10.2003 Finnur Dellsén : Auðvitað er eitthvað að!

Í grein Illuga Jökulssonar í Fréttablaðinu sl. laugardag spyr höfundur hvort starfskraftar minnihlutans fái að njóta sín sem skyldi á Alþingi og sveitarstjórnum víðsvegar um landið. Bent var á að þeir þingmenn (eða sveitarstjórnarmenn) sem eru í minnihluta eftir kosningar væru fullir áhuga og gæddir ýmsum hæfileikum til að stjórna, þótt svo hafi viljað til að flokkur þeirra sitji ekki í meirihluta.

Lesa meira
 

24.10.2003 Dagur Snær Sævarsson : Í guðs friði, farðu

Nýlega hafa þeir Karl Sigurbjörnsson og Björn Bjarnason lýst yfir andstöðu sinni við aðskilnað ríkis og kirkju. Kirkjan sjálf vill halda sér í skjóli ríkisins og njóta stuðnings almennings. Innflytjendum, sem hingað hafa komið vegna stríðsástands í heimalandi eða kúgunar, hefur fjölgað mikið.

Lesa meira
 

23.10.2003 Anna Tryggvadóttir : Tónlistarnám er menntun

Um þessar mundir eru margir tónlistarnemar á framhaldsstigi í miklum vafa um framtíð náms síns. Síðan Reykjavíkurborg ákvað að hætta að styrkja þá tónlistarnema sem ekki eiga lögheimili í Reykjavík hafa kviknað deilur milli sveitarfélaga og ríkisins um hver eigi að greiða fyrir það nám.

Lesa meira
 

22.10.2003 Oddur Ástráðsson : Hjá vondu fólki

Eftir 11. september 2001 hefur ríkisstjórn Bandaríkjanna verið í krossferð gegn meintum hryðjuverkamönnum og þjóðum. Á þessum rúmlega tveimur árum hafa verið háð tvö stríð í skjóli þess að verið sé að berjast gegn hryðjuverkum. Bandaríkjastjórn og skósveinar þeirra hafa farið með logandi sverði og steypt vondu fólki á borð við talíbanastjórnina í Afghanistan og hinn mjög svo illa Saddam Hussein af stóli og eru flestir sammála um að gott hafi verið að skipta þessum mönnum út.

Lesa meira
 

21.10.2003 Katrín Jakobsdóttir : Fjölþreifni Arnolds og hlutverk fjölmiðla

Viðurkennt er að vald fjölmiðla er viðkvæmt og vandmeðfarið. En hvenær stendur fjölmiðill sig í stykkinu og hvenær ekki? Blaðamenn á Los Angeles Times hljóta að klóra sér í höfðinu og velta þessari spurningu fyrir sér þessa dagana eftir að Arnold Schwarzenegger var kjörinn ríkisstjóri í Kaliforníu nú fyrir skemmstu.

Lesa meira
 

13.10.2003 Katrín Jakobsdóttir : Samræmdir og dáðlausir

Ef við getum verið sammála um að vísindin efli alla dáð má spyrja hvort íslenskt samfélag verði ekki brátt dáðlaust með öllu ef enginn vill efla vísindin. Nú má spyrja hvort hér efli menn ekki vísindin á hverjum degi með fjárveitingum og fögrum orðum en þegar horft er á aðgerðir íslenskra stjórnvalda í menntamálum er ekki hægt að sjá markvissa þróun í átt að meiri og betri menntun, aðeins samhengislausar breytingar sem óljóst er hvaða tilgangi þjóna.

Lesa meira
 

10.10.2003 Anna Tryggvadóttir : Vændi er vandamál

Á síðasta kjörtímabili lögðu þingmenn VG ítrekað fram frumvarp um breytingar á lögum sem snúa að vændi. Frumvarpið fékk ekki stuðning frá öðrum þingmönnum og var fellt í hvert skipti. Sem betur fer virðist sem þingmönnum VG hafi tekist að koma vitinu fyrir hina stjórnarandstöðuflokkana auk Framsóknarflokks, þar sem 14 þingkonur úr þeim flokkum hafa tekið sig saman og lagt fram sama frumvarp, í lítið eitt breyttri mynd.

Lesa meira
 

8.10.2003 Finnur Dellsén : Enn af prakkarastrikum Berlusconis

Undirritaður hefur áður vakið máls á stjórnarháttum Silvios Berlusconis, forsætisráðherra Ítalíu. Til upprifjunar og almennrar glöggvunar má nefna að hinn viðkunnanlegi Silvio er ríkasti maður Ítalíu, sem er kannski ekki að furða því hann á stóran hlut í flestum iðnfyrirtækjum landsins auk þess sem stærstu auglýsingastofur, kvikmyndahús og fjölmiðlasamsteypur landsins eru margar hverjar í hans eign.

Lesa meira
 

7.10.2003 Katrín Jakobsdóttir : Alltaf í ruglinu

Þegar þing var sett í síðustu viku var ekki laust við að maður hugsaði: „Ó, nei, þarf maður nú að þola fjögur ár af þessu rugli í viðbót.“ Umhugsað rugl í mínum huga var áframhaldandi seta þessarar ríkisstjórnar og það rugl sem hún stendur fyrir. Rugl á borð við sparnað í mennta- og heilbrigðiskerfi, ...

Lesa meira
 

6.10.2003 Steinunn Þóra Árnadóttir : Fastir liðir - eins og venjulega?

Síðustu daga hefur talsvert borið á fréttum þar sem sagt er frá múr sem Ísraelsmenn eru að reisa utan um byggðir sínar á Vesturbakkanum. Múrinn virðist illa þokkaður af flestum öðrum en Ísraelsmönnum sjálfum og hafa ýmsir orðið til þess að líkja honum við Berlínarmúrinn og þann aðskilnað sem stjórnvöld í Suður-Afríku beittu þegna sína.

Lesa meira
 

3.10.2003 Freyr Rögnvaldsson : Manstu ekki eftir mér?

Flesta dreymir um að starf þeirra gefi eitthvað af sér, að það skilji eitthvað eftir sig. Það er líklega lítil ánægja fólgin í því að líta til baka yfir starfsferil sinn og sjá engan árangur, ekkert sem hægt er að líta til. Því er kannski ekki að undra að það setji hroll að þeim sem að sjá lok starfsferils síns nálgast án þess hafa unnið „stóra“ afrekið.

Lesa meira
 

2.10.2003 Anna Tryggvadóttir : Leysum umferðarhnútinn

Gatnakerfi Reykjavíkurborgar er sprungið. Þetta vita allir sem hafa verið í bíl á einhverri af aðalsamgönguæðum borgarinnar á álagstímum. Allir virðast vera á eitt sáttir um að margt þurfi að gerast í samgöngumálum borgarinnar, ekki einungis til að umferðin geti gengið hraðar fyrir sig, heldur einnig til að draga úr slysahættu.

Lesa meira
 

1.10.2003 Katrín Jakobsdóttir : Ég er karl, kona og maður

Kynjaumræða var áberandi hér á landi á vormánuðum, einkum í tengslum við Femínistafélagið sem stóð fyrir mikilli vitundarvakningu um réttindi kvenna. Umræðan um kynin virðist þó enn vera þrungin gríðarlegri togstreitu. Þannig má vart minnast á að karlmenn geti átt bágt án þess að forsvarsmenn kvenréttindahreyfingarinnar gangi fram fyrir skjöldu og minni á að konur eigi líka bágt.

Lesa meira
 



Leita á vefnum



Eldri pistlar


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica