Ísrael-Palestína: Fyrirgefning til friðar
Á landsfundi Ungra vinstri grænna voru ýmis mál rædd en hjá mér var það Ísrael-Palestínu stríðið sem var efst á baugi. Ég hélt smá ræðu um málið og var svo talað um hið umtalaða stríð í ályktun um utanríkismál. Ég vil ræða það nánar.
Þann 15 maí 1948 lýstu Ísraelsmenn yfir sjálfstæðu ríki í landi Palestínu. Daginn eftir réðust Arabaríkin á Ísrael og hugðust leggja ríkið niður. Ísraelsmenn stóðust allar árásir og lögðu undir sig stærra svæði en það sem Sameinuðu þjóðirnar höfðu úthlutað þeim. Þetta reyndist aðeins vera upphafið að því sem koma skyldi. Ísraelsmenn og Palestínumenn hafa upp frá þessu deilt um landsvæði og nokkur stríð brotist út. Ísraelsstjórn er enn að reyna ná fleiri svæðum á sitt vald. Þeir hafa hertekið yfirráðasvæði Palestínumanna, þeir hafa einangrað leiðtoga þeirra og ætla að flæma hann burt. Þeir hafa jafnvel gengið svo langt að lýsa því yfir að þeir ætli að drepa hann. Um tíma stóð til að friður yrði saminn en ein árás var gerð og allt fór í rúst.
Ástandið er þannig nú að báðir aðilar hefna fyrir allar árásir. Ísraelsher ræðst inn á palestínskt yfirráðasvæði og palestínsk hryðjuverkasamtök svara með sjálfsmorðsárás og þannig gengur það koll af kolli í vítahring hefnda. Ekki bætir úr skák að ríkisstjórn hægri öfgamanns stjórnar landinu og er maðurinn ekki hræddur við að siga hernum á saklausa borgara í hefndarskyni fyrir sjálfsmorðsárárásir palestínskra hryðjuverkasamtaka. Ég er hins vegar ánægður með þá 27 flughermenn í ísraelska hernum, sem neita að ráðast á saklausa borgara þrátt fyrir hótanir stjórnar hersins og ríkisstjórnar. Þeir hafa samviskuna í lagi.
Ég er kristinn maður og ég trúi á Guð (með tilliti til annarra trúarbragða). Hann kennir mér að fyrirgefa og ég trúi því að fyrirgefning sé lausn á vanda fortíðar og ryðji leið til samninga. Það er hægt að velja milli þess að hefna eða að fyrirgefa. Hefnd er ávísun á stríð og getur leitt til manntjóns og fleiri alvarlegra afleiðinga. Fyrirgefning bindur enda á stríð og greiðir veg til samninga. Fyrirgefning er leið út úr vítahring hefnda að mínu mati og hægt er að mynda hinn góða hring fyrirgefningar og friðar. Ég hef trú á friði og ég vil að Ísland sýni frumkvæði og beiti sér fyrir friði á alþjóðavettvangi í stað þess að elta Bandaríkin stöðugt. Varðveitum friðinn.
