Gleðitíðindi frá Svíþjóð - sigur lýðræðis
Ljóst er að útkoma evrukosninganna í Svíþjóð er mikið áfall fyrir stuðningsmenn Evrópusambandsins. Stjórnmálamenn, fulltrúar ESB og sænskir fjármagnseigendur lofuðu batnandi tíð með blómum í haga ef tekin yrði upp evra í landinu.
Sænskum kjósendum var líka bent á hversu alvarlegt það yrði fyrir Svíþjóð að nota sænsku krónuna áfram ? því myndu fylgja hærri vextir, lélegur gjaldmiðill og ótryggt viðskiptaumhverfi sem þýddi brotthvarf sænskra fyrirtækja. Farsímarisinn Ericsson hótaði til að mynda að fara frá Svíþjóð ef Svíar samþykktu ekki að taka upp evruna. En þrátt fyrir stuðning peningaaflanna, flestra stjórnmálaaflanna og mikinn hræðsluáróður, töpuðu evrusinnar í Svíþjóð með miklum mun. En hvers vegna var almenningur í Svíþjóð svona andsnúinn evrunni?
Svartsýnisáróður evrusinna virkaði ekki, því á meðan kosningabaráttan stóð yfir bárust fréttir af efnahagskreppu í evrulöndum. Svíþjóð stóð miklu betur að vígi í efnahagslegu tilliti en þjóðir innan evrusvæðisins. Málflutningur evrusinna var því ótrúverðugur, þar sem hann stóðst ekki prófstein raunveruleikans. Hótanir stórfyrirtækja eins og Ericsson voru líka ákaflega illa ígrundaðar og juku enn á andstöðuna. Margir andstæðingar evrunnar líta á gjaldmiðilinn sem gæluverkefni evrópskra stórfyrirtækja og fjármagnseigenda. Slík sjónarmið fengu byr undir báða vængi með hótun Ericsson. Fannst þar mönnum kristallast ofstopavald þeirra fjármagnseigenda sem ráða ferðinni inni á lokuðum kontórum Evrópusambandsins.
Andstæðingar evrunnar töldu sig líka vera að slá skjaldborg utan um sænska velferðarkerfið. Með því að kasta krónunni skuldbyndu Svíar sig til að mynda að halda halla á fjárlögum innan við 3%. Ýmis slík ákvæði ollu ótta um að Svíar þyrftu að gefa eftir í velferðarmálum í mögulegum skiptum fyrir efnahagslegan sveigjanleika. Fyrir margt félagshyggjufólk er það gjörsamlega óásættanlegt og sönnun þess hve efnahagslegir þættir ráða miklu í stefnumótun Evrópusambandsins.
Ekki má heldur gleyma almennri andstöðu fólks við lokuð forræðisbákn eins og Evrópusambandið. Þó svo að atkvæðagreiðslan síðastliðinn sunnudag hafi snúist um að taka upp evru sem gjaldmiðil að þá eru úrslitin ákveðinn dómur yfir Evrópusambandinu. Fjarlægt ákvörðunarvald, þar sem menn hittast á lokuðum fundum og taka mikilvægar ákvarðanir, er mjög óspennandi fyrirbæri fyrir þorra almennings. Niðurstaðan í Svíþjóð sýnir okkur það.
Huginn Freyr Þorsteinsson
