Ung vinstri græn
Pistlar

15.9.2003 Steinunn Þóra Árnadóttir

Fri hash - Fyr Fogh!

Íbúum Kristjaníu er ekki hlátur í huga um þessar mundir. Þvert á móti eru þeir önnum kafnir í baráttu fyrir tilverurétti fríríkisins. Hin hægrisinnuðu stjórnvöld í Danmörku telja öllum fyrir bestu að Kristjaníu verði lokað og lóð hennar notuð fyrir nýbyggingar, sem hægt væri að græða stórfé á. Þau hafa nú efnt til hugmyndasamkeppni meðal arkitekta um framtíðarskipulag svæðisins, með það að meginmarkmiði að losna við núverandi samfélag.

Deilan um framtíð Kristjaníu er að mörgu leyti kúnstug og segir raunar ansi margt um gildismat þeirra einstaklinga sem taka afstöðu annaðhvort með eða á móti verndun og viðhaldi fríríkisins. Sömu rökin eru nefnilega notuð af báðum aðilum en undir ólíkum formerkjum þó.

Stuðningsmenn Kristjaníu segja hana dásamlega vin í miðri stórborginni, þar sem anarkismi og umburðarlyndi ríkja. Hún veiti mannsandanum mikilvægt frelsi til að blómstra og sé börnum öruggt umhverfi. Í augum þeirra væri það ekkert minna en menningarlegt stórslys að breyta staðnum í venjulega raðhúsabyggð.

Það er nákvæmlega þessi fjölbreytileiki og þetta frjálslyndi sem er eitur í beinum þeirra sem loka vilja fríríkinu. Að þeirra mati er sá skortur á reglufestu, sem öðru fremur einkennir Kristjaníu, höfuðmeinsemd sem ber að uppræta. Höfnun íbúanna á ýmsum þáttum borgaralegs gildismats ýtir undir fordóma og sögur af hvers kyns ólifnaði og glæpastarfsemi. Og alkunn hassnotkun íbúanna eykur enn á vandlætinguna.

Deilan um framtíð Kristjaníu snýst að verulegu leyti um það að hvaða marki samfélagið umberi eða jafnvel viðurkenni notkun kannabisefna. Um langt skeið hefur slík neysla verið litin talsvert öðrum augum í Danmörku en til að mynda hér á landi. Óhætt er að fullyrða að þorri fólks hafi litið hassneyslu öðrum augum en notkun harðari fíkniefna. Aðförin að Kristjaníu er því öðrum þræði tilraun til að draga úr þessu umburðarlyndi.

Átökin um framtíð Kristjaníu eru hafin og þau má sjá hvarvetna á götum Kaupmannahafnar. Slagorð á borð við „Bevar Christiania“ og „Fri hash - Fyr Fogh“ eru á hverju strái og lesendadálkar dagblaðanna eru fullir af bréfum þar sem hin ólíku sjónarmið eru reifuð. Allir virðast hafa skoðun á málinu.

En hvaða máli getur það skipt okkur Íslendinga, hvort nokkur hundruð Kristjaníubúar flytjast búferlum? Er hér ef til vill bara um að ræða skipulagsmál sem Kaupmannahafnarbúa eina varðar um? Nei, þau sjónarmið sem takast á í deilunum um framtíð fríríkisins eru viðameiri og hafa skírskotun til miklu fleiri en íbúanna sjálfra.

Í þessu máli takast á sjónarmið þeirra sem trúa á mátt fjölbreytileikans og samfélag sem þolað getur ólíkan lífsstíl íbúanna annars vegar, en hins vegar þeirra sem kalla á straumlínulögun samfélagsins á grundvelli millistéttargilda. Krafa dönsku ríkisstjórnarinnar er einföld, að allir séu steyptir í sama mót. Það er því full ástæða fyrir frjálslynt fólk á Íslandi að fylgjast grannt með framvindu mála í Kristjaníu næstu mánuðina.

Steinunn Þóra Árnadóttir

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica