Ung vinstri græn
Pistlar

10.9.2003 Gunnar Örn Heimisson

Þola hrefnuveiðimenn ekki málefnalega gagnrýni?

Í frétt sem birtist á Vísi.is snemma í morgun segir að Konráð Eggertsson, skipstjóri hrefnuveiðibátsins Halldórs ÍS, hafi beðið fyrir skilaboð til Grænfriðunga sem nú liggja við Ísafjarðarhöfn á flaggskipi sínu. Skilaboðin voru á þá leið að þeir skildu ekki tilgang hrefnuveiðanna og jafnframt hefur hann hvatt Íslendinga til að hafna heimsókn Grænfriðunga.

Er ekki allt í lagi?

Nú veit ég ekki betur en að allur málflutningur Grænfriðunga hafi verið á afar málefnalegum nótum og þeir hafi grandskoðað málið og komið með raunhæfar og hógværar mótvægistillögur. En hins vegar hafa Grænfriðungar ekki fengið hlýjar móttökur frá landanum. Samkvæmt vefmiðli þeirra hafa þeir orðið fyrir ýmis konar aðkasti, m.a. hefur eggjum verið kastað í þá og frægt er þegar nokkrir ungir menn tóku sig saman og grilluðu hrefnu á höfninni.

Nú má spyrja sig hvort sé málefnalegra og þroskaðra að koma með þaulskipulagðar tillögur sem geta fært Íslendingum mikinn auð á vistvænan og umhverfisvænan hátt eða það skítkast sem Grænfriðungar hafa orðið fyrir.

Um 13.000 græningjar hafa nú þegar sent sendiráðum okkar í Bandaríkjunum, Bretlandi og Þýskalandi beiðni þess efnis að við látum af hrefnuveiðum. Tæplega þúsund manns senda bréf þess efnis að þeir gætu hugsað sér að heimsækja Ísland, látum við af veiðunum, daglega.

Svo má spyrja sig hver sé efnahagslegur ávinningur veiðanna. Er hann eins mikill og fólk býst við? Mér þætti gaman ef einhver myndi taka saman tölur um það hversu mörg störf skapast við að veiða tæplega 40 hrefnur til samanburðar ef fjöldi ferðamanna myndi aukast um tja, segjum 500 manns á hrefnu, 20.000. Og við skulum ekki gleyma margfeldisáhrifunum sem hver ferðamaður hefur á hagkerfið.

Í mínum huga er þetta raunhæft, afar raunhæft og við þyrftum ekki að hafa þennan þrýsting frá Grænfriðungum, ef aðeins ríkisstjórnin hefði gefið vistvænum ferðaiðnaði betri gaum.

Nú veit ég ekki hvort Konráð Eggertsson skilur hugtakið vistæn ferðamennska en ég ætla að leyfa honum að njóta vafans. En eitt er víst og það er það að ef einhver þolir ekki málefnalega gagnrýni, þá er það yfirleitt vegna þess að þeir verja ekki nógu góðan málstað.

Gunnar Örn Heimisson

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica