Ung vinstri græn
Pistlar

3.9.2003 Gunnar Örn Heimisson

Nokkur orð um mannslíf

Á hverjum degi deyr fólk, þúsundum saman, af alls kyns ástæðum. Flestir úr hungursneyð, vegna styrjalda og sjúkdóma og slysa. Nú er það svo að há tíðni geimferðaslysa undanfarið veldur ungum framsóknarmönnum miklu hugarangri, sem þeir lýsa í grein á vef sínum sem ber nafnið „Er ekkert fréttir nema það sem gerist í Bandaríkjum Norður Ameríku“. Auðvitað eru þessi slys hörmuleg og mannslíf sem tapast þar eru alveg jafn mikilvæg og mannslíf annars staðar í heiminum.

En framsóknarfólki blöskrar hversu misvinsæl slysin eru hjá fjölmiðlum. Þ.e.a.s. hversu vinsælt umfjöllunarefni Columbia geimferðarslysið var, þar sem sjö menn fórust, og hversu óvinsælt nýlegt geimferðarslys sem átti sér stað í Brasilíu var, en þar týndu um 20 manns lífi. Vissulega er þessi gagnrýni góðra gjalda verð og gaman er að sjá að framsóknarmenn eru farnir að stunda sjálfstæða rannsóknarvinnu í stað þess að kokgleypa við því sem við heyrum í íslenskum og öðrum vestrænum fjölmiðlum.

Til að koma ungum framsóknarmönnum á sporið er rétt að telja upp nokkrar staðreyndir í kjölfar aukins áhuga þeirra á „að taka fréttamati íslenskra fjölmiðla með ákveðnum fyrirvara“.


a) Í aðdragandi árásarstríðsins gegn Írak, sem Framsóknarflokkurinn studdi með ráðum og dáð, stóðu fjölmiðlar engan veginn vaktina. Þeir voru mataðir af upplognum staðhæfingum um gereyðingavopnaeign Íraka og íslensku fréttastofurnar fluttu orðréttar þýðingar af gangi mála frá fréttastofum hliðhollum árásaraðilunum. Þar hafa nú þúsundir týnt lífi og ekki tóku heimamenn árásarliðinu fagnandi eins og umsjónarmenn erlendra frétta fullyrtu svo oft í leiðurum sínum í kvöldfréttunum.

b) Nú hefur Bandaríkjastjórn ákveðið að leggja annað land í rúst, sem vel að merkja er ekki vegna olíuhagsmuna; Venesúela. Réttara sagt eru þeir að leggja lýðræði landsins í rúst því í Venesúela var ekki einræðisríki heldur nokkuð lýðræðislegt ríki, á suður amerískan stuðul, með lýðræðislega kjörinn forseta, Hugo Chavez. En Chavez var sviptur embættinu á ólöglegan hátt með stuðningi Bush-stjórnarinnar.

Nú má að sjálfsögðu deila um ágæti Hugo Chavez en það er víst að vestrænir fjölmiðlar hafa dregið upp mun verri mynd af honum en rétt er. En eitt er víst og það er það að Bandaríkjastjórn hefur engan rétt á því að steypa af stóli lýðræðislega kjörnum forseta sem er ekki hliðhollur þeim. Þetta myndi þykja hin mesta hneisa ef einhverjir aðrir hefðu gerst sekir um slíkan glæp en Bush-stjórnin.

c) Og nú yfir í aðra heimsálfu, Afríku. Þar ríkir mikið óeirðarástand á mörgum stöðum sem ekki sér fyrir endann á. Og ég er ekki að að tala um Líberíu einvörðungu.

Í Kongó, sem eitt sinn hét Zaire, er ástandið vægast sagt hrikalegt. Samkvæmt tölum frá Amnesty International er áætlað að minnsta kosti 3,3 milljónir manna hafi látist af sökum styrjalda, flestir úr hungursneið og sjúkdómum, síðan í ágúst 1998. Jafnframt hafa 2,25 milljónir manna hrakist frá heimilum sínum og margir hverjir í órafjarlægð frá hjálparstofnunum. Samt hef ég það á tilfinningunni að geimferðaslysin hafi fengið mun meiri umfjöllun í íslenskum fjölmiðlum en þessi sorgarsaga.

Nú ætla ég að láta staðar numið í bili. En framsóknarmenn þurfa ekki að örvænta því ég ætla að halda áfram með þessa upptalningu mína því af nógu er að taka. Ég hef hugsað mér að klára allavega stafrófið, og svo jafnvel kýríllíska stafrófið næst og svo er líka hægt að notast við talnakerfið.

Eins og ég sagði í upphafi eru mannslíf jafn mikilvæg hvar sem er í heiminum og geimferðaslysin eru hörmuleg, samt held ég að þau verði aftarlega í minni upptalningu. Það er kominn tími til að íslenskir ungliðar fari að líta í fleiri áttir og sjá hverja þeir, og ráðherrar þeirra, styðja á alþjóðavettvangi.

Gunnar Örn Heimisson

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica