Ung vinstri græn
Pistlar

1.9.2003 Huginn Freyr Þorsteinsson

Er stjórnarandstaðan í sumarfríi?

Ritstjóri Fréttablaðsins fullyrðir að sumarfrí stjórnarandstöðunnar sé ein aðalástæða þess að Sjálfstæðisflokkurinn bæti við sig fylgi í nýrri skoðanakönnun blaðsins. Ekki fylgir með útskýring á því af hverju Framsóknarflokkurinn tapar mest allra flokka í þessari sömu könnun.

En hefur stjórnarandstaðan verið í fríi? Hvað varðar Vinstrihreyfinguna - grænt framboð þá er svarið nei. Í allt sumar hefur þingflokkur VG fundað reglulega og rætt þau mál líðandi stundar. Sumir þessara funda hafa orðið tilefni til ályktana sem sendar eru fjölmiðlum. Auk þess hafa þingmenn og aðrir verið iðnir við að skrifa á heimasíður sínar eða síður á vegum flokksins.

Í sumar hélt Vinstrihreyfingin - grænt framboð líka flokksráðsfund á Hótel Loftleiðum, þar sem ályktað var um flest þau atriði, sem ritstjórinn telur að enginn í stjórnarandstöðu hafi talað um á opinberum vettvangi. Í „ályktun um aðbúnað og kjör starfsmanna við Kárahnjúka“ er lýst vanþóknun á þeim fyrirtækjum á vegum Landsvirkjunar sem brjóta íslensk lög og kjarasamninga. Ætti sú ályktun að ylja ritstjóranum um hjartaræturnar en hann fullyrðir að enginn þingmaður VG hafi sýnt aðbúnaði og kjörum verkamanna við Kárahnjúka áhuga.

Einnig ætti ályktunin um sjálfstæða utanríkisstefnu – friðarstefnu að vera kærkomin inn á borð ritstjóra Fréttablaðsins. Í því máli hefur VG einn flokka barið á ríkisstjórnarflokkunum fyrir undirlægjuhátt gagnvart bandarískri utanríkisstefnu og fagnað þeirri uppgötvun Bandaríkjahers að hér hafi hann ekkert að gera vegna þess hversu friðvænlegt sé í þessum heimshluta.

Vandi okkar hefur kannski fyrst og fremst verið áhugaleysi stóru fjölmiðlanna á þessari skoðun okkar og þjónkun þeirra við valdhafa í þessu máli. Augljósasta dæmið um þjónkunina er þegar Ríkissjónvarpið ákvað að fá utanríkisráðherra í Kastljós til að fjalla um utanríkis- og hermál og daginn eftir var forsætisráðherra fenginn til að ræða sömu mál. Óþarft er að taka fram að Halldór og Davíð fengu að sitja einir að svörum í sannkölluðum drottningarviðtölum. Ríkissjónvarpið ómakaði sig hins vegar ekki á því að kalla málsvara þeirra sem eru ósammála Halldóri og Davíð í svo sem hálfan Kastljós þátt eða einfaldlega til að rökræða við þá.

Að síðustu má benda á ályktun flokksráðs um hveitibrauðsdaga ríkisstjórnarinnar og svikin loforð. Í henni er gagnrýnt hvernig ríkisstjórnin hefur svikið nokkurra vikna gömul kosningaloforð sín. Einnig er bent á hvernig hún hélt mikilvægum upplýsingum leyndum í kosningabaráttunni, eins og um verðsamráð olíufélaganna og viljaBandaríkjahers til að draga hér saman herlið sitt. Vonandi finnst ritstjóra Fréttablaðsins þetta nægilega greinargott yfirlit yfir gagnrýni í þeim málaflokkum sem stjórnarandstaðan hefur að hans mati ekki hreyft við í sumar. Óhætt er að fullyrða að málefnalega gagnrýni á núverandi ríkisstjórn hefur aldrei skort úr herbúðum Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, hvorki í sumar né aðra tíma ársins. Hins vegar verður að segjast að oft mættu fjölmiðlar landsins vera duglegri við að gagnrýna valdhafa og leyfa öðrum sjónarmiðum að koma fram í ríkara mæli. Mikillar einsleitni gætir iðulega í umfjöllum ýmissa fjölmiðla um veigamikil málefni samtímans og reynist það þeim sem tefla fram andstæðum sjónarmiðum erfiður róður. Af hverju þessi einsleitni stafar veit ég ekki en hún er ekki bara vandamál fjölmiðlanna vegna þess að hún stendur lýðræðislegri umræðu fyrir þrifum.

Þessi grein hefur áður birst í Fréttablaðinu.
Huginn Freyr Þorsteinsson

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica