Ung vinstri græn

Pistlar

30.9.2003 Björn Reynir Halldórsson : Ísrael-Palestína: Fyrirgefning til friðar

Á landsfundi Ungra vinstri grænna voru ýmis mál rædd en hjá mér var það Ísrael-Palestínu stríðið sem var efst á baugi. Ég hélt smá ræðu um málið og var svo talað um hið umtalaða stríð í ályktun um utanríkismál. Ég vil ræða það nánar.

Lesa meira
 

23.9.2003 Huginn Freyr Þorsteinsson : Gleðitíðindi frá Svíþjóð - sigur lýðræðis

Ljóst er að útkoma evrukosninganna í Svíþjóð er mikið áfall fyrir stuðningsmenn Evrópusambandsins. Stjórnmálamenn, fulltrúar ESB og sænskir fjármagnseigendur lofuðu batnandi tíð með blómum í haga ef tekin yrði upp evra í landinu.

Lesa meira
 

16.9.2003 Anna Tryggvadóttir : Nei, nú eru bara allir farnir í skólann...

Sumarið er búið eins og sjá má glögglega sjá á þeim fjölda skólabarna sem flykkist í ólíkar menntastofnanir. Hápunktur ferðamannasumarsins er vissulega liðinn, en ekki er enn komið haust í ferðamannaiðnaðinum, eins og litrík flóra erlendra túrista á höfuðborgarsvæðinu og víðar ber réttilega merki.

Lesa meira
 

15.9.2003 Steinunn Þóra Árnadóttir : Fri hash - Fyr Fogh!

Íbúum Kristjaníu er ekki hlátur í huga um þessar mundir. Þvert á móti eru þeir önnum kafnir í baráttu fyrir tilverurétti fríríkisins. Hin hægrisinnuðu stjórnvöld í Danmörku telja öllum fyrir bestu að Kristjaníu verði lokað og lóð hennar notuð fyrir nýbyggingar, sem hægt væri að græða stórfé á. Þau hafa nú efnt til hugmyndasamkeppni meðal arkitekta um framtíðarskipulag svæðisins, með það að meginmarkmiði að losna við núverandi samfélag.

Lesa meira
 

11.9.2003 Katrín Jakobsdóttir : Rafmagnsleysi framundan

Fréttir af rafmagnsleysi vestan hafs og austan vöktu athygli á dögunum. Reyndar þóttu þær mest spennandi á meðan menn töldu hugsanlegt að illskeyttir múslimar stæðu á bak við rafmagnsleysið í Bandaríkjunum en annað kom á daginn. Í ljós kom að orkufyrirtæki þar vestra töldu ekki arðbært að fjárfesta í besta mögulega búnaði og þar af leiðandi minnkaði öryggi rafveitunnar svo um munaði. Nánar tiltekið svo mikið að kerfið réð ekki við ástandið í ágúst og brást gjörsamlega.

Lesa meira
 

10.9.2003 Gunnar Örn Heimisson : Þola hrefnuveiðimenn ekki málefnalega gagnrýni?

Í frétt sem birtist á Vísi.is snemma í morgun segir að Konráð Eggertsson, skipstjóri hrefnuveiðibátsins Halldórs ÍS, hafi beðið fyrir skilaboð til Grænfriðunga sem nú liggja við Ísafjarðarhöfn á flaggskipi sínu. Skilaboðin voru á þá leið að þeir skildu ekki tilgang hrefnuveiðanna og jafnframt hefur hann hvatt Íslendinga til að hafna heimsókn Grænfriðunga.

Lesa meira
 

3.9.2003 Gunnar Örn Heimisson : Nokkur orð um mannslíf

Á hverjum degi deyr fólk, þúsundum saman, af alls kyns ástæðum. Flestir úr hungursneyð, vegna styrjalda og sjúkdóma og slysa. Nú er það svo að há tíðni geimferðaslysa undanfarið veldur ungum framsóknarmönnum miklu hugarangri, sem þeir lýsa í grein á vef sínum sem ber nafnið „Er ekkert fréttir nema það sem gerist í Bandaríkjum Norður Ameríku“.

Lesa meira
 

1.9.2003 Huginn Freyr Þorsteinsson : Er stjórnarandstaðan í sumarfríi?

Ritstjóri Fréttablaðsins fullyrðir að sumarfrí stjórnarandstöðunnar sé ein aðalástæða þess að Sjálfstæðisflokkurinn bæti við sig fylgi í nýrri skoðanakönnun blaðsins. Ekki fylgir með útskýring á því af hverju Framsóknarflokkurinn tapar mest allra flokka í þessari sömu könnun.

Lesa meira
 

Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica