Fyrnist svona hryllingur?
Eflaust muna einhverjir eftir fréttabrotum þar sem sagt var frá því að Bandaríkjamenn væru farnir að nota napalm í stríðinu gegn Írak. Jafnvel mesta rólyndisfólki, sem annars lét sér fátt um stríðsrekstur tveggja af öflugustu herveldum heimsins finnast, virtist ofbjóða. En svo bárust ekki fleiri fréttir í bili um hina meintu notkun á napalmi.
Nú ber svo við að á nýjan leik fréttist af þessum andstyggilegu sprengjum sem eiga sér fáa jafnoka í ófögnuði sínum. Og jú, það voru vinir okkar og verndarar Bandaríkjamenn sem notuðu sprengjurnar í Írak - og það þrátt fyrir sáttmála Sameinuðu þjóðanna um bann við notkun þeirra. En hin voldugu Bandaríki höfðu að sjálfsögðu ekki skrifað undir slíka samninga, frekar en svo marga aðra alþjóðasamninga sem önnur ríki hafa samþykkt í viðleitni sinni við að gera heiminn að örlítið skárri búsetustað.
Ætli við verðum ekki bara að treysta því að bandarískir herfræðingar hafi miðað skotmörk sín svo vel út að einungis vondu karlarnir hafi fengið að upplifa á eigin skinni þá tilfinningu þegar plastefni og þotubensín læsa sig utan um líkamann og skapa þannig góðan eldsmat svo fórnarlambið geti brunnið upp í sannkölluðum vítislogum? Varla getur það vafist fyrir þeim fréttamönnum og sérfræðingum sem kepptust við að útskýra fyrir okkur ?ótrúlega nákvæmni? sprengjuárása Bandaríkjamanna og Breta.
Hvernig ætli standi á því að nú þegar Bandaríkjamenn hafa viðurkennt napalmnotkunina (með orðhengilshætti þó), skuli lítið fara fyrir fregnum af málinu í íslenskum fjölmiðlum? Ekki skorast þeir undan því að flytja okkur miður geðslegar fréttir af hroðalegum atburðum sem gerast í hinum ýmsu löndum veraldarinnar. Og svikalaust bera þeir okkur æsifregnir af staðfastri leit Bandaríkjamanna að Saddam og hyski hans.
Getur verið að skýringin sé sú að fréttir af napalmnotkun Bandaríkjamanna hljómi hreinlega of hryllilega í eyrum vestræns almennings? Getur verið að slíkum frásögnum sé erfitt að finna heppilegan stað í íslenskum fréttatímum meðan ráðamenn, í nafni þjóðarinnar, upphugsa leiðir til að ríghalda í þennan sama bandaríska her? Og er e.t.v. ekki bara best fyrir okkur öll að gleyma því sem fyrst að ríkisstjórn okkar lagði blessun sína yfir þetta sama stríð í okkar nafni?
