Heppin
Kaldhæðnin í auglýsingum VÍS gegn umferðarslysum er augljós og yfirþyrmandi. Allir vita að strákurinn telur sig ekki vera heppinn þegar hann hefur drepið vini sína og lamað sjálfan sig. En engu að síður virðist vera aragrúi af fólki eins og Dóri var áður, sem telur sig vera heppið og komast upp með að þverbrjóta umferðarlög æ ofan í æ.
En þessum heppnu, sem komast upp með ölvunar- og hraðakstur aftur og aftur fækkar ört. Á ári hverju deyja tugir Íslendinga og mun fleiri örkumlast eða slasast alvarlega og verða fyrir miklum, varanlegum skaða.
Það er eiginlega ógjörningur að svara þeirri spurningu hvort verra sé að hafa slasast í umferðinni vegna gáleysis og fífldirfsku annarra eða að hafa það á samviskunni að hafa slasað einhvern sem keyrt hafði samviskusamlega.
En af hverju skyldi það vera að Íslendingar þurfi að búa við að hafa eina af hæstu tíðni banaslysa á höfðatölu sem þekkist í heiminum, þrátt fyrir að bílarnir séu öllu jafna betri en víðast hvar annars staðar og að miklum fjármunum er varið til vegagerðar og umferðarfræðslu? Þá gæti einhver bent á að Ísland sé stórt og strjálbýlt land, vegirnir séu sums staðar í óviðunandi ástandi og veðrið sé oft brigðult. En árekstrarnir og banaslysin eiga sér langoftast stað þar sem aðstæður eru góðar, en ökumennirnir annaðhvort ofmeta aksturshæfileika sína eða vanmeta hraðann sem þeir eru á, nema hvort tveggja sé.
Ja, eitthvað er það ? eins og einhver sagði. Ef maður skoðar nágrannalandið Svíþjóð kemur í ljós að þar hafa banaslys verið sex sinnum sjaldgæfari miðað við höfðatölu fyrir nokkrum árum. Gæti verið að þær miklu kröfur sem ökukennarar gera til nemenda sinna séu að skila sér í mun öruggari umferð. Eða gæti jafnvel verið að góðar almenningssamgöngur geri að verkum að fólk í síður ökuhæfu ástandi skilji bílinn eftir heima og taki strætó?
Auðvitað eru þetta einungis vangaveltur ? og ég held að við ættum að leyfa Óla H. Þórðarsyni og öðrum starfsmönnum umferðarráðs að finna bestu lausnirnar á þessum vanda.
En eins og hjá ýmsum fíklum er mikilvægast að viðurkenna að vandinn sé til staðar, svo að hægt sé að leysa hann. Umferðarslys eru alltof algeng og það er kominn tími til að bregðast við þessum vanda. En enn eru ýmsir ráðamenn þjóðarinnar eins og fíklar í afneitun og neita að horfast í augu við blákaldar staðreyndir.
