Beint í leiðarkerfi vefsins.
Það er sérkennileg tilfinning fyrir Íslending að koma á söguslóðir Rómverja og Grikkja og virða fyrir sér forn mannvirki sem bera vott um horfna siðmenningu. Hér á landi eru slíkar minjar fátíðar, enda veðurfar óhagstætt og fallegar trébyggingar hafa oft orðið eldinum að bráð.
Lesa meiraGeorge W. Bush safnar um þessar mundir fé fyrir komandi kosningar þótt enn séu eitt ár og 69 dagar til þeirra. Söfnunin hlýtur að ganga vel því forsetinn er farinn að leyfa sér að tala um umhverfismál og gortar sig af árangrinum þar, flestum til mikillar undrunar. Á föstudaginn var tókst forsetanum m.a.s. að eigna sér vöxt laxastofna við Kyrrahafið þótt sérfræðingar leiti skýringa í breyttu veðurfari.
Lesa meiraÁ laugardagskvöldið blómstraði menning í Reykjavík sem aldrei fyrr. Hin árlega menningarnótt kryddaði daglegt amstur höfðuðborgarbúa og óhætt segja að langflestir hafi haft gagn og gaman af þessari menningargjöf borgarinnar.
Lesa meiraÁ upphafsárum kapítalismans var hefðin sú að atvinnurekendur færu sínu fram og notuðu verkamenn eins og þræla. Í framhaldinu voru verkalýðsfélög stofnuð til að standa vörð um og berjast fyrir réttindum verkamanna. Framfarirnar hafa verið gríðarlegar, einkum í vestrænum ríkjum. Kjör og aðbúnaður hafa batnað mikið og því hafa mörg stórfyrirtæki leitað til þriðja heimsins eftir „ódýru“ vinnuafli. Þar hafa jafnvel börn verið látin þræla fyrir hverri krónu og aðstæður allar hinar ömurlegustu.
Lesa meiraÁ tímum borgarastyrjaldar í Líberíu, skæruhernaðar gegn bandarískum hermönnum í Írak og knésetningar Davíðs Oddsonar á Bush-stjórninni, hefur lítið farið fyrir umræðu um ástandið í Afganistan eftir að „frelsararnir“ sprengdu landið í tætlur og boðuðu frið og lýðræði í landinu.
Lesa meiraHið mikla og dásamaða fjórða vald, fjölmiðlar, hafa haft af nógu að taka í sumar. En ekki virðast þeir starfi sínu vaxnir, sem aðhald gegn ríkjandi valdhöfum. Málefni olíufélaganna eru dæmi um hve fjölmiðlar hafa reynst ótrúlega slappir. Veigamiklar spurningar eins og um tengsl félaganna við stjórnmálaflokka voru að mestu leyti sniðgengnar.
Lesa meiraEflaust muna einhverjir eftir fréttabrotum þar sem sagt var frá því að Bandaríkjamenn væru farnir að nota napalm í stríðinu gegn Írak. Jafnvel mesta rólyndisfólki, sem annars lét sér fátt um stríðsrekstur tveggja af öflugustu herveldum heimsins finnast, virtist ofbjóða. En svo bárust ekki fleiri fréttir í bili um hina meintu notkun á napalmi.
Lesa meiraGay Pride 2003 komið og farið. Rigning. Það skiptir ekki máli; sama kraftinum og lífsgleðinni stafaði af þessari öflugu hátíð sem nú er orðin að árlegu tilhlökkunarefni. Einhver sem fylgdist glaður með lýsti því yfir að ?....hann vildi óska að hann hefði verið hommi þennan dag!?
Lesa meiraSú hugmyndafræði virðist verða útbreiddari í höfuðborginni að efling landsbyggðarinnar sé tímasóun. Fólk heldur því beinlínis fram að fólksflóttinn frá landsbyggðinni sé eðlileg þróun sem ekki eigi að reyna að stoppa og sér eftir þeim fjármunum sem lagðir eru í eflingu byggðalaga á Íslandi. Benda menn á hvílík hagræðing náist fram með því að allir landsmenn búi í einum þéttbýliskjarna.
Lesa meiraKaldhæðnin í auglýsingum VÍS gegn umferðarslysum er augljós og yfirþyrmandi. Allir vita að strákurinn telur sig ekki vera heppinn þegar hann hefur drepið vini sína og lamað sjálfan sig. En engu að síður virðist vera aragrúi af fólki eins og Dóri var áður, sem telur sig vera heppið og komast upp með að þverbrjóta umferðarlög æ ofan í æ.
Lesa meiraVilhjálmur H. Vilhjálmsson, oddviti minnihlutans í Reykjavík, gerðist siðgæðisvörður heiðarlegra viðskiptahátta, í síðustu viku, með því að ráðast gegn borgarstjóranum í Reykjavík, Þórólfi Árnasyni, fyrir þátt í hans í olíusamráðinu. Vilhjálmur gaf meira að segja í skyn að Þórólfur segði ósatt, þegar Þórólfur bar af sér sakir í málinu. Ekki ætla ég að halda uppi vörnum fyrir Þórólf Árnason, enda veit ég fátt um þátt hans í samráði olíufélaganna.
Lesa meiraÞó að hryðjuverkin í Bandaríkjunum og stríðin gegn Afganistan og Írak hafi vakið hvað mesta athygli umheimsins á þeim tíma sem liðinn er síðan George Bush settist á forsetastól í Bandaríkjunum, hefur afstaða forsetans til umhverfismála einnig vakið nokkra athygli, þó alls ekki næga
Lesa meira