Ung vinstri græn
Pistlar

24.6.2003 Katrín Jakobsdóttir

Tjáningarfrelsinu varpað fyrir róða

Mörgum hefur vafalaust verið brugðið sem horfðu á Kastljósið á sunnudaginn. Þar voru sýndar myndir frá hátíðardagskránni 17. júní. Nokkrir ungir menn tóku sig til og héldu þar á skiltum þar sem mótmælt var stríðs- og hernaðarhyggju. Ekki leið á löngu uns lögreglumenn dreif að úr öllum áttum og voru skiltin fjarlægð og piltarnir reknir af Austurvelli. Atvikið hefur vakið mikilvægar spurningar um tjáningarfrelsi og hvert stefni í samfélagi okkar.

Flestum standa enn í fersku minni þau mótmæli sem urðu þegar Kínaforseti heimsótti landið í fyrra en þá mótmæltu margir meðferð kínverskra stjórnvalda á Falun Gong-hreyfingunni. Stjórnvöld misstu sig þá algerlega, stöðvuðu saklaust fólk í að koma til landsins á grundvelli svokallaðs svarts lista (sem nú hefur komið í ljós að var með öllu ólöglegt að nota til slíks) og reyndu að ryðja mótmælendum brott hvar sem þeir voru.

Atvikið núna er í sama dúr. Piltarnir sem mótmæltu gerðu það á friðsamlegan hátt og voru engum til ama. Reyndar má telja öruggt að mótmælin hefðu vakið hverfandi athygli ef ekki hefði verið fyrir framgang lögreglu. En hver er þá tilgangurinn með þessu framferði lögreglu?

Í raun sé ég bara einn tilgang með því að stöðva mótmæli á þennan hátt. Og það er að fæla aðra frá því að mótmæla, koma í veg fyrir að fólk láti skoðanir sínar í ljósi. Enda spurði eitt barn á vellinum af hverju væri verið að fara með mennina. Þegar því var sagt að þeir hefðu verið að mótmæla spurði barnið hvort það væri bannað að mótmæla. Þá varð fátt um svör.

Staðreyndin er sú að lögreglunni er ætlað að halda uppi lögum og reglu í landinu. Hlutverk hennar er ekki að passa upp á að engar skoðanir heyrist nema skoðanir forsætisráðherra og flokkssystkina hans. En svo virðist sem forsætisráðherra eigi einkarétt á að láta skoðanir sínar í ljós á 17. júní ? sem hann svo sannarlega gerði ? og öðrum sé það ekki heimilt. Í praxís er bannað að mótmæla 17. júní þó að engin lög hafi verið sett um það. Og merkilegt nokk er nóg af lögreglumönnum á vakt þá ? ólíkt því sem gerist í miðbænum um helgar.

Atvikið á þjóðhátíðardeginum er enn eitt einkennið á veiku samfélagi þar sem stjórnarherrar óttast allar aðrar skoðanir en sínar eigin. Þessi veiki minnir svolítið á stjórnarstefnunna fasisma ? þ.e. best er að við einir ráðum. Ef einhver annar fær að segja það sem honum finnst gæti fólkið áttað sig á því að hann hefur nokkuð til síns máls og þá ráðum við kannski ekki lengur.

En kannski sjáum við fram á bjartari tíma. Nýjum dóms- og kirkjumálaráðherra, hefur orðið tíðrætt um frelsið, a.m.k. þegar kemur að atvinnurekstri. Vonandi metur hann tjáningarfrelsið jafn mikils. Nema hann ætli sér að nota nýja herinn sinn fyrir ?alvarleg?atvik eins og það sem varð á Austurvelli 17. júní?

Katrín Jakobsdóttir

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica