Beint í leiðarkerfi vefsins.
Eru Grunnskólar Reykjavíkur miðstýrðar og ósjálfstæðar stofnanir þar sem frumkvæði einstaklingsins er bælt niður af ferköntuðum kerfiskörlum og konum? Er markmið Grunnskóla Reykjavíkur að kýla öll börn í sama far meðalmennsku og miðjumoðs? Sumum kynnu að þykja þessar spurningar fáránlegar en samt sem áður bendir nýleg umræða til þess að öðrum þyki þær fullkomlega eðlilegar.
Lesa meiraMörgum hefur vafalaust verið brugðið sem horfðu á Kastljósið á sunnudaginn. Þar voru sýndar myndir frá hátíðardagskránni 17. júní. Nokkrir ungir menn tóku sig til og héldu þar á skiltum þar sem mótmælt var stríðs- og hernaðarhyggju. Ekki leið á löngu uns lögreglumenn dreif að úr öllum áttum og voru skiltin fjarlægð og piltarnir reknir af Austurvelli. Atvikið hefur vakið mikilvægar spurningar um tjáningarfrelsi og hvert stefni í samfélagi okkar.
Lesa meiraMargt foreldrið hefur beitt þeirri árangursríku aðferð að hræða börn sín með hryllingssögum af ýmsum fyrirbærum til þess að börnin forðist þau eins og heitan eldinn. Á sama hátt hefur verið bent á að við markaðssetningu á ýmsum neysluvörum séu notuð öflug tól til að fá almenning til að kaupa vörur (sem hann hefur e.t.v. enga sérstaka þörf fyrir).
Lesa meiraUmræðan síðustu daga um hugsanlegt brotthvarf bandaríska hersins frá Íslandi hefur um margt verið kostuleg en þó fyrst og fremst leitt í ljós hversu þrönga og firrta sýn margir hafa á tilgang og eðli herja. Ótrúlega margir virðast líta svo á að meginhlutverk hersins hér á landi sé og hafi verið að tryggja Suðurnesjabúum atvinnu, þó svo að í öðrum landshlutum sé atvinnusköpun álitin í verkahring atvinnulífsins eða íslenskra stjórnvalda.
Lesa meiraKvenréttindadagurinn er í dag, og samt er enn langt í land með að jafnrétti kynjanna verði staðreynd. Laun eru einn flötur á jafnréttismálunum og má ganga svo langt að meta þróun jafnréttismála með því að bera saman laun karla og kvenna. Norræna ráðherranefndin hefur látið vinna skýrslu sem sýnir, svo ekki verður um villst, að enn ríkir í þjóðfélaginu sú fáránlega tilhneiging að greiða konum lægri laun en körlum.
Lesa meiraEðlilegt er að eitthvað hægi á þjóðmálaumræðunni á sumrin. Ekki má þó gleyma því sem er mikilvægt
Lesa meiraFundi átta ríkustu landa heims í Frakklandi lauk fyrir skömmu. Helsta niðurstaða fundarins - og það eina sem leiðtogarnir átta gátu komið sér saman um - var að hryðjuverkastarfsemi ógnaði stöðugleika í heiminum og berjast yrði gegn henni. Þá var og samþykkt ályktun um að þrýsta á Norður-Kóreu og Íran að hætta við áætlanir sínar í kjarnorkumálum. Minna fór fyrir því að leiðtogar þessara ríkustu landa heimsins ræddu um nauðsynlegar og réttlátar aðgerðir til að stemma stigu við fátækt í heiminum. Misskipting auðævanna er yfirleitt talið mesta vandamál heimsins.
Lesa meiraSkólakerfið íslenska þarf að vera í stöðugri þróun til að mæta þörfum nýs samfélags. Samfélags sem byggist á því að hugvit mannsins er virkjað í stað þess að byggja hagvöxt á rányrkju á viðkvæmum náttúruauðlindum. Þetta verður einkum gert með efldri menntun og meiri rannsóknum.
Lesa meira