Ung vinstri græn
Fréttir
  • susstjarna

Ályktun um málefni Ungra sjálfstæðismanna og „réttarríkisins Bandaríkja Norður-Ameríku“

20.9.2011

Stjórn Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu samgleðst Ungum sjálfstæðismönnum í því að þeir hafi loksins séð ljósið og áttað sig á hluta af fáránleika bandarískrar stjórnsýslu. Tillaga þeirra um að beita Bandaríkin refsiaðgerðum er til fyrirmyndar, þó að forsendurnar séu aðeins toppur þess ísjaka ódæðisverka  og mannréttindabrota sem eiga sér daglega stað í sjálfskipuðu fyrirmyndarríki frelsis og lýðræðis.
Má þar nefna tilgangslausan en svívirðilegan stríðsrekstur í hinum ýmsu heimshornum, áframhaldandi rekstur Guantanamo Bay, heilbrigðis- og menntakerfi til háborinnar skammar, hrottalegar aftökur án dóms og laga, dauðarefsingar og svo mætti lengi telja.
Það er ánægjulegt að ungliðahreyfingar geti komist að sömu niðurstöðum þrátt fyrir ólíkan hugmyndafræðilegan bakgrunn. Vonandi er að skapist vettvangur fyrir samræðupólitík og eðlileg skoðanaskipti frekar en þann pólitíska skotgrafahernað sem einkennt hefur íslensk stjórnmál frá ómunatíð. Segjum saman bless við Sám frænda.

Stjórn Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu (UVGh)

Senda


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica