Ung vinstri græn
Fréttir
  • gisli

Ný stjórn Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu

11.9.2011

Aðalfundur Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu fór fram föstudaginn 9.september í húsnæði Vinstri grænna í Kópavogi. Á fundinum lét Claudia Overesch af störfum en hún hefur verið formaður hreyfingarinnar síðastliðið ár. Nýr formaður hreyfingarinnar er Gísli Garðarsson fornfræðinemi. Önnur sæti í stjórn skipa Eva Hrund Hlynsdóttir, læknisfræðinemi, Tinna Ingólfsdóttir mannfræðinemi, Helgi Hrafn Ólafsson íþróttafræðinemi og Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir framhaldsskólanemi. Varamenn eru Jónas Roy Bjarnason og Una Hildardóttir framhaldsskólanemar ásam Bjarna Þóroddssyni lögfræðinema og fyrrverandi formanni Ungra vinstri grænna á Akureyri. Um leið og félagið þakkar Claudiu Overesch fyrir góð störf er nýjum formanni og nýrri stjórn óskað velfarnaðar í starfi.

Eftirfarandi ályktanir voru samþykktar á fundinum:

Ályktun um leigumarkað
Aðalfundur Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu, haldinn að Kragakaffi þann 9. september 2011, fagnar því að langvarandi vandkvæði fólks á leigumarkaði hafi loksins náð eyrum stjórnvalda. Lengi hafa opinberar umræður um málefni leigjenda einkennst af djúpstæðum doða sem komið hefur í veg fyrir umleitanir lausna á leigumarkaði. Á sama tíma og tillögur um sameiningu húsaleigubóta og vaxtabóta í nýja útgáfu húsaleigukerfisins eru tilefni til fagnaðar eru þær í raun ekki ósvipaðar því að reyna að slökkva í skógareldi með vatnsglasi. Húsaleigukerfi Íslendinga er í flestum grundvallaratriðum stórgallað – svokallaður almennur leigumarkaður, líkt og finnst á Norðurlöndum og víðar, hefur ekki verið til staðar á Íslandi svo neinu nemi frá landnámi. Aukin sókn í leigumarkað, þó svo hún stafi að líkindum frekar af nauðsyn heldur vilja, gefur færi á endurskoðun húsaleigukerfisins - tækifæri til að skapa regluverk og grundvöll fyrir öflugan leigumarkað sem hentar öllum og stuðla með því að fráhvarfi frá hinni allsráðandi sjálfseignarstefnu sem er svo rík meðal Íslendinga í þessum málum svo sem öðrum. Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu skora á stjórnvöld að nýta tækifærið.

Stjórnlagafrumvarp fyrir þjóð
Aðalfundur Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu, haldinn að Kragakaffi þann 9. september 2011, krefst þess að tillögur Stjórnlagaráðs verði lagðar í þjóðaratkvæðagreiðslu áður en þær verða teknar fyrir á Alþingi. Verði þeim hafnað af þjóðinni ber að endurskoða þær, en verði þær samþykktar kemur það í veg fyrir að sitjandi þingi gefist kostur á því að breyta þeim á ómálefnalegum forsendum eða týna inntaki þeirra í nefndarstörfum.

Almennilegar almenningssamgöngur
Aðalfundur Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu, haldinn að Kragakaffi þann 9. september 2011, skorar á borgar- og landsyfirvöld að gera almenningssamgöngur að raunhæfum valkosti fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins. Til þess að kröftugt almenningssamgangnakerfi geti verið rekið á því svæði sem tveir þriðjungar þjóðarinnar búa á þarf að grípa til markvissra og margvíslegra aðgerða.

Strætisvagnakerfi höfuðborgarsvæðisins ætti á tímum hækkandi eldsneytisverðs og aukinnar meðvitundar um loftslagsmál að vera opinber grunnþjónusta, en ekki rekið sem fyrirtæki sem skilar hagnaði á sama tíma og þjónustan er skorin niður ár eftir ár. Best væri ef almenningssamgöngur væru gjaldfrjálsar, í það minnsta fyrir ákveðna hópa, til dæmis nemenda, eldri borgara, öryrkja, barna og svo framvegis, óháð lögheimili.

Töluverð umræða hefur skapast undanfarið um fjölda einkabíla á Íslandi og áhrif þess á skipulag og loftslag höfuðborgarsvæðisins. Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu leggja til að kallinu sé svarað og stefnan verði tekin frá einkabílnum og í átt að öflugum almenningssamgöngum. Þessu má ná með því að hækka bílastæðagjöld verulega, taka upp þau gjöld við stærstu byggingar byggðarlagsins, svo sem Háskóla Íslands og fleiri, og nota tekjur af þeim í rekstur almennilegra almenningsamganga.

Lokum Laugavegi og Austurstræti!
Aðalfundur Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu, haldinn að Kragakaffi þann 9. september 2011, álítur að loka beri Laugavegi og Austurstræti fyrir bílaumferð allan ársins hring og að sú lokun nái frá upphafi Austurstrætis og að gatnamótum Laugavegs og Snorrabrautar. Lokun Austurstrætis og Laugavegar síðastliðið sumar gaf góða raun, þó sú lokun hafi verið stutt og náð til lítils svæðis. Laugavegurinn myndi sóma sér betur sem lífleg göngugata en sem aðal rúnturinn í Reykjavík.

Um sameiginlega velferðarþjónustu
Aðalfundur Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu, haldinn að Kragakaffi þann 9. september 2011, skorar á borgarstjórn og bæjarstjórnir á höfuðborgarsvæðinu, í ljósi nýlegrar umfjöllunar um m.a. leikskólamál, húsnæðisvanda og félagsþjónustu, að efla og bæta samskipti sín á milli til þess að auðvelda aðgengi og nýtingu fólks á grunnþjónustu þeirri sem borgar- og bæjarstjórnir eru kosnar til þess að veita. Hlutverk kjörinna fulltrúa er að standa vörð um og efla nauðsynlega grunnþjónustu en ekki skýla sér á bak við skrifræði og formsatriði né reyna að koma málum yfir á önnu bæjar- eða sveitarfélög.

Um réttmæti Kirkjubyggingasjóðs
Aðalfundur Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu, haldinn að Kragakaffi þann 9. september 2011, á sama tíma og hann fagnar þeirri ákvörðun borgarstjórnar að styrkja ekki Íslensku Kristskirkjuna tekur fundurinn undir með Sóleyju Tómasdóttur borgarfulltrúa að Kirkjubyggingasjóður sé í sjálfu sér óréttlætanlegur. Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu skora á borgarstjórn að draga niðurskurðarhnífinn úr almenningsþjónustu og beina honum frekar að óþarfa styrkveitingum.

Senda


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica