Undirbúningsfundur og pubquiz
Eins og áður hefur verið auglýst fer landsfundur Ungra vinstri grænna fram í Reykjavík 15. og 16. október næstkomandi. Að því tilefni ætla Ung vinstri græn að standa fyrir sérstökum undirbúningsfundi næstkomandi miðvikudagskvöld, 13. október. Undirbúningsfundurinn verður í húsnæði VG að Suðurgötu 3 í Reykjavík og hefst klukkan 20:00.
Á fundinum verða fyrirliggjandi ályktanir, lagabreytingatillögur og tillögur að breytingum á stefnuyfirlýsingu kynntar - auk þess sem farið verður yfir lög um fundarsköp. Að því loknu verður slegið á léttari strengi með pubquiz og léttum veitingum. Þessi viðburður er sérlega gagnlegur þeim sem ætla að mæta á landsfundinn og eru allir hjartanlega velkomnir.

