Ung vinstri græn
Fréttir
  • Stjórnarráðið

Ríkisstjórnin hafni hervæðingu

31.8.2010

Stjórn Ungra vinstri grænna skorar á ríkisstjórn Íslands að slíta nú þegar öllum samningaviðræðum við hollenska hernaðarfyrirtækið ECA um að það fái leyfi til að halda uppi starfsemi á Íslandi. Mögulegur fjárhagslegur ávinningur auk starfa sem kunna að skapast réttlæta ekki á nokkurn hátt að starfsemi fyrirtækis sem þjálfar fólk í að drepa eða limlesta annað fólk sé heimiluð á Íslandi. Gildir þá einu hvort tækin sem notuð eru hér á landi séu vopnum búin eður ei. Áætlanir af þessu tagi samræmast alls ekki áformum stjórnvalda um að gera Ísland að miðstöð friðar í heiminum.

 

Ísland er herlaust land og á að mati stjórnar Ungra vinstri grænna að vera öðrum þjóðum til eftirbreytni með því að leggjast alfarið gegn stríðsrekstri og öllu honum tengdu. Þrátt fyrir að Íslendingar þurfi nú að glíma við afleiðingar efnahagskreppunnar eigum við að leita annarra leiða heldur en þeirra sem ganga út á að hagnast á og stuðla að neyð annars fólks.

Senda


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica