Ung vinstri græn
Fréttir
  • Merki ungra vinstri grænna

Ályktun UVGh um fyrirætlanir Dómsmála- og mannréttindaráðherra

Um forvirkar rannsóknarheimildir

17.8.2010

Stjórn Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu mótmælir  harðlega hugmyndum dómsmálaráðherra sem sagt var frá í Fréttablaðinu þann 16. ágúst og fela í sér stórauknar rannsóknarheimildir lögreglunnar. Með því að heimila njósnir um einstaklinga án án þess að fyrir liggi rökstuddur grunur um saknæmt athæfi er ríkisvaldið komið út á næfurþunnan ís. Út frá grundvallar mannréttinda - og lýðræðissjónarmiðum verður að hafna öllum slíkum hugmyndum.

Ung vinstri græn hafa lengi verið gagnrýnin á störf dómsmálaráðuneytisins, ekki hvað síst í stjórnartíð Björns Bjarnasonar. Má þar nefna ömurlega stefnu í málefnum hælisleitenda og annarra útlendinga sem hingað hafa viljað koma, vaxandi áhersla á hermennsku og vopnaburð í starfsemi lögreglunnar á kostnað hefðbundinnar löggæslu og ýmis konar aðför að almennum mannréttindum, ekki hvað síst með njósnum og hertu eftirliti.

Það eru mikil vonbrigði að þótt vinstristjórn sitji í landinu, hafi ekki orðið vart mikilli stefnubreytinga á sviði dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins. Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu minna á að Ragna Árnadóttir situr í skjóli VG og Samfylkingar. Ákvarðanir hennar eru því á ábyrgð þessara flokka. Sé Ragna Árnadóttir ófær um að hverfa frá þeirri stefnu og þeim áherslum sem einkenndu ráðuneyti hennar í langri valdatíð Sjálfstæðisflokksins, er best að hún víki hið fyrsta. Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu skora sérstaklega á þingflokk Vinstrihreyfingarinnar Græns framboðs að slá þessar áætlanir út af borðinu og standa vörð um mannréttindi. Til þess var hann kjörinn.

Senda


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica