Ung vinstri græn
Fréttir
  • Merki ungra vinstri grænna

Aðalfundur UVGH fimmtudaginn 26. ágúst

12.8.2010

Aðalfundur Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu verður haldinn fimmtudagskvöldið 26. ágúst næstkomandi að Suðurgötu 3 í Reykjavík. Fundurinn hefst klukkan 20:00 og er opinn öllum þeim sem hafa áhuga á starfi UVGH, en atkvæðisrétt á fundinum hafa félagar í Ungum vinstri grænum.

Á fundinum fara fram venjuleg aðalfundastörf; afgreiðsla lagabreytinga, ályktana og kosning stjórnar fyrir næsta starfsár. Þá fara einnig fram almennar stjórnmálaumræður. Frestur til að skila inn lagabreytingatillögum rennur út á miðnætti 24. ágúst og frestur til að skila inn ályktunum í upphafi fundarins. Hægt er að bjóða sig fram í stjórn UVGH alveg fram að kosningu stjórnar á fundinum. Allir áhugasamir eru hvattir til að bjóða sig fram.

Fyrirspurnir, lagabreytingatillögur, ályktanir og framboð til stjórnar skulu berast Snærós Sindradóttur, formanni UVGH, á netfangið snaeros@hotmail.com.

Senda


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica