Ung vinstri græn
Fréttir
  • Auður Lilja Erlingsdóttir

Auður Lilja framkvæmdastýra VG

27.6.2010

Á fundi stjórnar VG föstudaginn 25. júní síðastliðinn var ákveðið að ráða Auði Lilju Erlingsdóttur í stöðu framkvæmdastýru flokksins frá og með 1. júlí næstkomandi, en þá lætur Drífa Snædal af störfum.

Auður Lilja er fyrrverandi formaður Ungra vinstri grænna en er nú varaþingmaður VG í Reykjavíkurkjördæmi suður. Þá á hún einnig sæti í stjórn flokksins. Á sama tíma og Ung vinstri græn þakka Drífu Snædal fyrir góð störf í þágu flokksins og gott samstarf við UVG undanfarin ár, óskar hreyfingin Auði Lilju innilega til hamingju með nýja starfið og óska henni velfarnaðar.

Senda


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica