Ung vinstri græn
Fréttir
  • uvg-logo

UVG á ferð um Árborg

25.5.2010

Miðvikudaginn 26. maí ætla aðilar úr stjórn Ungra vinstri grænna ásamt Atla Gísasyni, þingmanni Suðurkjördæmis, og frambjóðendum VG í Árborg að sækja þrjá staði í sveitarfélaginu heim. Fyrst verður haldið Í Shell á Stokkseyri milli klukkan 17 og 18. Strax í kjölfarið stendur til að koma við í Gónhól á Eyrarbakka og stoppa við í um það bil klukkustund. Að lokum verður haldið til Selfoss þar sem boðið verður til fundar á kosningaskrifstofu Vinstri grænna að Austurvegi 28 (gömlu Ljósheimar). Íbúar sveitarfélagsins eru eindregið hvattir til að láta sjá sig á fundunum og spjalla við föruneytið.

Senda


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica