Fréttir
Vel heppnaðir tónleikar í Deiglunni
Baráttutónleikar Ungra vinstri grænna á Akureyri í Deiglunni í kvöld voru mjög vel heppnaðir. Hljómsveitirnar Buxnaskjónar, Fönkbandið og Sjálfsprottin spévísi ásamt trúbadornum Guðrúnu Veturliðadóttur stóðu sig með stakri prýði. Tónleikarnir voru vel sóttir og bekkirnir í Deiglunni þétt setnir. Ung vinstri græn vilja koma á framfæri sérstökum þökkum til allra þeirra sem lögðu hönd á plóginn við að gera þessa tónleika að veruleika.
