Ung vinstri græn
Fréttir
  • Akureyi

Líf og fjör hjá ungu vinstrafólki á Akureyri

19.5.2010

Nóg er um að vera hjá ungu vinstrafólki á Akureyri um þessar mundir. Í gær tók félag vinstrimanna í Menntaskólanum á Akureyri þátt í kappræðum við félag hægrimanna í skólanum. Meðal umræðuefna voro fjármál ríkis og sveitarfélaga, skattar, Icesave-málið, velferðaþjónusta og skipulagsmál á Akureyri. Í dag gaf félag vinstrimanna í MA út róttæka málgagnið Sannleikinn eins og hefð er fyrir á vorin.

Í dag heldur stjórn Ungra vinstri grænna á Akureyri ásamt formanni UVG opinn fund á Húsavík. Fundurinn fer fram í kosningamiðstöð VG í Norðurþingi, að Neðri vör, og hefst klukkan 20:00.

Næstkomandi laugardagskvöld halda Ung vinstri græn á Akureyri svo stórtónleika í Deiglunni þar sem hljómsveitirnar Buxnaskjónar, Sjálfsprottin spévísi og Fönkbandið ásamt trúbadornum Guðrúnu Veturliðadóttur stíga á stokk. Ókeypis er inn á tónleikana sem hefjast klukkan 21:00 og eru öllum opnir.

Þá halda Ung vinstri græn á Akureyri áfram að dreifa málgagninu Íllgresi og nýjum barmmerkjum sem fóru í dreifingu síðastliðið föstudagskvöld. Rétt er að minna á Pubquiz VG á Akureyri í kosningamiðstöðinni við Brekkugötu 7a klukkan 20:30 næstkomandi föstudagskvöld.

Senda


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica