Fréttir
Íllgresi kemur út á föstudaginn
Íllgresi, málgagn Ungra vinstri grænna, verður gefið út næstkomandi föstudag, 14. maí. Að því tilefni munu Ung vinstri græn bjóða til útgáfupartýs á tveimur stöðum á landinu - annars vegar að Suðurgötu 10 í Reykjavík og hins vegar að Brekkugötu 7a á Akureyri. Partýin hefjast bæði klukkan 21:00.
Engin formleg dagskrá verður í partýunum, heldur fá gestir eintak af þessu glæsilega og nýútprentaða blaði og eru velkomnir að taka þátt í gleðskapnum.
