Frumvörp um mansal og hælisleitendur kynnt
Stjórn Ungra vinstri grænna boðar til fundar þar sem farið verður yfir efnisatriði tveggja frumvarpa sem dómsmála- og mannréttindaráðuneytið hefur lagt fram til kynningar. Fundurinn fer fram þriðjudaginn 2. mars næstkomandi að Suðurgötu 3 í Reykjavík og hefst klukkan 20:00.
Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið sendi í síðustu viku frá sér fréttatilkynningu þess efnis að drög að tveimur frumvörpum verði lögð fyrir Alþingi um miðjan mars. Annars vegar er um að ræða frumvarp um breytingar á útlendingalögum og tekur á málefnum hælisleitenda hér á landi, en hins var frumvarp um nýja flokka dvalarleyfa handa brotaþolum mansals.
Ætlunin er að kynna efni frumvarpanna fyrir fundargestum og ræða kosti þeirra og galla. Þá er markmiðið að búa til álit félagsfundar UVG á frumvörpunum og koma því í kjölfarið til dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins.
Heitt verður á könnunni og eru allir velkomnir.

