Ungliði í oddvitaslag
Karólína Einarsdóttir, 29 ára líffræðingur og leikskólakennari, hefur gefið kost á sér í 1.-2. sæti í forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Kópavogi sem fram fer laugardaginn 27. febrúar næstkomandi.
Ungliðar náðu afar góðum árangri í forvali flokksins í Reykjavík um síðastliðna helgi þar sem Elín Sigurðardóttir, Snærós Sindradóttir og Vésteinn Valgarðsson náðu öll í hóp efstu átta frambjóðenda. Elín hafnaði í fjórða sæti og fátt virðist geta komið í veg fyrir að hún taki hið minnsta sæti sem varaborgarfulltrúi að loknum kosningum í vor.
Karólína hefur tekið þátt í starfi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs frá stofnun hreyfingarinnar og hefur setið í stjórn Ungra vinstri grænna. Hún er nú formaður svæðisfélags VG í Kópavogi.
