Ung vinstri græn
Fréttir
  • Akureyi

Nýliðakvöld á Akureyri

9.2.2010

Stjórn Ungra vinstri grænna stendur fyrir tveimur nýliðakvöldum í þessari viku; miðvikudaginn 10. febrúar og fimmtudaginn 11. febrúar. Nýliðakvöldin fara bæði fram í húsnæði VG að Brekkugötu 7a og hefjast bæði klukkan 20:00. Þau verða bæði með svipuðu sniði en hugmyndin með því að hafa tvö nýliðakvöld er að fólk getur þá valið þá dagsetningu sem hentar betur.

Nýliðakvöld eru hugsuð sem sérstök kynningarkvöld fyrir alla þá sem eru áhugasamir um að taka þátt í starfi UVG með einhverjum hætti en hafa ekki gert það áður. Engin sérstök dagskrá verður á fundinum heldur verður bara um létt spjall að ræða. Aðilar úr stjórn UVGA kynna starf og stefnu hreyfingarinnar fyrir fundargestum og svara þeim spurningum sem kunna að vakna. Allt það fólk sem hefur komið sínum sjónarmiðum og hugsjónum á framfæri og tekið þátt í að móta samfélagið á sviði stjórnmálanna byrjaði með einhverjum hætti - nýliðakvöld eru sérstaklega ætluð þeim sem vilja kynnast slíku starfi og stíga sín fyrstu skref.

Að sjálfsögðu verður heitt á könnunni. Allir áhugasamir eru hjartanlega velkomnir.

Senda


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica