Ung vinstri græn
Fréttir
  • Opnun kosningamiðstöðvar UVG

Nýliðakvöld í Hafnarfirði í kvöld

9.2.2010

Stjórn Ungra vinstri grænna stendur fyrir nýliðakvöldi á Súfistanum í Hafnarfirði klukkan 20:00 í kvöld. Nýliðakvöld eru hugsuð sem sérstök kynningarkvöld fyrir alla þá sem eru áhugasamir um að taka þátt í starfi UVG með einhverjum hætti en hafa ekki gert það áður. Aðilar úr stjórn UVGH kynna starf og stefnu hreyfingarinnar fyrir fundargestum og svara þeim spurningum sem kunna að vakna. Allt það fólk sem hefur komið sínum sjónarmiðum og hugsjónum á framfæri og tekið þátt í að móta samfélagið á sviði stjórnmálanna byrjaði með einhverjum hætti - nýliðakvöld eru sérstaklega ætluð þeim sem vilja kynnast slíku starfi og stíga sín fyrstu skref.

Frekari upplýsingar veitir Snærós Sindradóttir, formaður UVGH, í síma 661 4411.


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica