Fréttir
Glæsilegur árangur ungliða
Ungliðarnir þrír náðu í efstu átta sætin í forvali VG í Reykjavík
Forval Vinstri grænna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík 29. maí nk. fór fram síðastliðinn laugardag. Þrír ungliðar voru meðal þeirra 19 sem gáfu kost á sér í forvalinu og enduðu þeir allir meðal átta efstu.
Elín Sigurðardóttir hafnaði í fjórða sæti í forvalinu, Snærós Sindradóttir í því sjöunda og Vésteinn Valgarðsson í áttunda sæti.
Stjórn Ungra vinstri grænna lýsir yfir ánægju með það brautargengi sem félagsmenn VG veittu ungu fólki í forvalinu í Reykjavík og skorar á kjörstjórnir flokksins um land allt að gæta þess að hlutdeild ungliða á framboðslistum verði viðunandi.
