Ung vinstri græn
Fréttir
Opnun kosningamiðstöðvar UVG

Spjallfundur á þriðjudaginn

18.1.2010

Stjórn Ungra vinstri grænna boðar til spjallfundar þriðjudaginn 19. janúar næstkomandi á Suðurgötu 3 í Reykjavík. Fundurinn hefst klukkan 21:00.

Engin framsaga verður haldin á fundinum heldur er hann hugsaður til þess að spjalla og skiptast á skoðunum um nýliðna atburði í íslenskum stjórnmálum, stöðu mála í dag, þjóðaratkvæðagreiðsluna framundan, stjórnarskrána og málskotsrétt forseta Íslands, eflingu lýðræðis o.s.frv.

Heitt verður á könnunni og eru allir velkomnir.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica