Ung vinstri græn
Fréttir
  • Ráðhús Reykjavíkur

Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnakosninga

14.1.2010

Stjórn Ungra vinstri grænna hvetur ungt fólk til þess að gefa kost á sér í forvöl Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs vegna sveitarstjórnarkosninganna sem fram fara laugardaginn 29. maí næstkomandi.

Framboðsfrestur fyrir forvöl sem haldin verða í Reykjavík og á Akureyri rennur út næsta laugardag, 16. janúar næstkomandi. Til þess að tilkynna framboð í forvalinu í Reykjavík þarf að senda skriflega tilkynningu á netfangið forval.reykjavík@vg.is. Til þess að tilkynna framboð í forvalinu á Akureyri þarf að senda tilkynningu á netfangið jer@akureyri.is.

Nánari upplýsingar um forvölin auk upplýsinga um framboð VG á öðrum svæðum á landinu má nálgast á www.vg.is og með því að hafa samband við Drífu Snædal, framkvæmdastýru flokksins, gegnum netfangið drifa@vg.is.

Senda


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica