Ung vinstri græn
Fréttir
  • Akureyi

Flokksráðsfundur VG 15.-16. janúar

10.1.2010

Flokksráðsfundur VG verður haldinn á hótel KEA á Akureyri dagana 15. og 16. janúar næstkomandi. Á fundinum verður meðal annars farið yfir stöðu mála í íslenskum stjórnmálum og rætt um verkefni komandi vikna og mánaða. Þótt einungis kjörnir fulltrúar hafi atkvæðisrétt á fundinum er öllum félögum í VG velkomið að taka þátt í fundinum að öðru leyti.

Stjórn Ungra vinstri grænna hvetur félagsmenn UVG til að mæta á flokksráðsfundinn. Þá sem vantar far milli Reykjavíkur og Akureyrar er bent á að hafa samband við Jan Eric formann UVG í síma 615 4433 eða á netfangið uvg@vinstri.is eins fljótt og auðið er svo hægt sé að sjá til þess að allir sem hafi áhuga komist norður.


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica