Fréttir
Róttækt kaffihúsakvöld
Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu standa fyrir róttæku kaffihúsakvöldi á Kaffi rót miðvikudaginn 11. nóvember næstkomandi. Lesið verður uppúr pólitískum verkum. Markmið kvöldsins er að slaka á með góðan kaffibolla við hönd, gleyma stund, stað og þjóðfélagsumræðunni og leyfa sér að hverfa aftur til kjarnans þar sem hugsjónir friðar, kvenfrelsis og réttlætis ráða för.
Dagskráin hefst klukkan 20:00 á Kaffi rót við Hafnarstræti 17.

