Fréttir
Fundur um Evrópusambandið
Fundað verður um Evrópusambandið laugardaginn 7. nóvember. Fundurinn fer fram á Suðurgötu 3 og hefst klukkan 16:00. Gestur fundarins er Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingflokksformaður VG.
Meðal annars verður rætt um afstöðu þingflokks VG til Evrópusambandsins og tekið á þeim farvegi sem aðildarumsóknin Íslands að ESB er í. Þá verður fjallað um gagnsæi í samningakerfinu og mikilvægi þess að upplýst og fordómalaus umræða fari fram í þjóðfélaginu.
Sem fyrr verða léttar veitingar í boði.

