Fréttir
Fundur um geðheilbrigðismál
Í tilefni af alþjóðlegum degi geðheilbrigðismála sem haldinn var laugardaginn 10. október síðastliðinn boða Ung vinstri græn til fundar um geðheilbrigðismál. Fundurinn verður haldinn í húsnæði VG að Suðurgötu 3 fimmtudaginn 15. október og hefst klukkan 20:00. Ragnheiður Jonna Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri, heldur framsögu auk tveggja fulltrúa frá Ungliðahreyfingu hugarafls.

