Ung vinstri græn
Fréttir
  • uvg-merki-72dpi

Ung vinstri græn styðja Ögmund Jónasson

30.9.2009

Ung vinstri græn lýsa yfir eindregnum stuðningi við Ögmund Jónasson,
fráfarandi heilbrigðisráðherra og þakka honum vel unnin störf um leið og
þau harma brotthvarf hans úr ráðherrastóli. Ögmundur
vann af einurð og eljusemi að því að verja heilbrigðiskerfið við erfiðar
aðstæður í ríkisfjármálum.

Þá hafa Ung vinstri græn fullan skilning á því að erfið verkefni bíði
þingflokks VG en vilja hvetja þingmenn sína til að standa ávallt þétt að
baki þeim gildum sem félagshyggjan byggir á og þjóðfélagið þarf virkilega
á að halda.

Ung vinstri græn styðja samstarf Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs
og Samfylkingar í ríkisstjórn og telja að þetta stjórnarmynstur
farsælustu leiðina til að standa vörð um velferðarkerfið í þeim blóðuga niðurskurði
sem framundan er.

Senda


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica