Ung vinstri græn
Fréttir
  • Merki ungra vinstri grænna

Ung vinstri græn halda sinn tíunda landsfund

25.9.2009

Tíundi landsfundur Ungra vinstri grænna hefst laugardaginn 26. september og stendur fram á sunnudag 27. september. Landsfundurinn er að þessu sinni haldinn á Hvoli á Hvolsvelli. Dagskrá landsfundar er  fjölbreytt, en meðal annars fara fram pallborðsumræður á laugardegi. Þar halda erindi Bjarni Jónsson formaður Siðmenntar - félagi siðrænna húmanista á Íslandi, Elín Sigurðardóttir félagsfræðingur sem heldur erindi um fátækt, og Ólafur Sigurjónsson frá náttúruverndarsamtökunum Sól á Suðurlandi.

Fyrirséð er að Steinunn Rögnvaldsdóttir mun ekki gefa kost á sér til áframhaldandi formennsku í hreyfingunni. Það er því ljóst að á landsfundinum verður kosinn nýr formaður til að leiða nýja stjórn, en stjórnarkjör fer fram á sunnudag.

Frekari upplýsingar og fréttir af fundinum eru birtar hér á heimasíðu Ungra vinstri grænna.


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica