Undirbúningskvöld fyrir landsfund
Landsfundur Ungra vinstri grænna fer fram helgina 25.-27. september 2009 á Hvolnum á Hvolsvelli. Ung vinstri græn standa fyrir undirbúningskvöldi fyrir landsfundinn næstkomandi miðvikudagskvöld, 23. september, að Suðurgötu 3. Fundurinn hefst klukkan 20:00.
Á fundinum mun Auður Lilja Erlingsdóttir kynna reglur um fundarsköp, en mikilvægt er að landsfundarfulltrúar séu vel að sér í fundarsköpum til að geta tekið virkan þátt í fundarhöldunum.
Þá munu fulltrúar stjórnar Ungra vinstri grænna að kynna þær ályktanir og lagabreytingar sem stjórn UVG leggur fram á landsfundinum. Hægt verður að skrá sig á landsfundinn á staðnum, en skráning fer einnig fram í gegnum uvg@vinstri.is eða síma 8475601 (Steinunn). Stjórnarmeðlimir UVG verða auk þess til skrafs og ráðagerða ef einhverjar spurningar vakna um hvaðeina sem viðkemur landsfundinum.
Ung vinstri græn hvetja ungliða sem ætla sér að mæta á landsfundinn til að hita upp fyrir helgina með því að mæta á þennan undirbúningsfund, en tekið skal fram að undirbúningsfundurinn er opinn öllum áhugasömum sem vilja hressa uppá fundarskapaþekkingu sína, kynna sér áherslumál UVG eða bara
rabba um pólitík yfir kaffibolla.

