Aðalfundur UVG á höfuðborgarsvæðinu
Snærós Sindradóttir kjörinn nýr formaður
Snærós Sindradóttir var kjörinn nýr formaður Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu á aðalfundi félagsins sem haldinn var að Suðurgötu 3 í Reykjavík þann 19. september sl. Fráfarandi formaður er Brynja Björg Halldórsdóttir sem gengt hefur embætti formanns í tvö ár.
Með Snærós voru kjörin í stjórn þau Ástríður Pétursdóttir, Björk Emilsdóttir, Claudia Overesch, Eva Hrund Hlynsdóttir, Helgi Hrafn Ólafsson, Ísleifur Egill Hjaltason, Silja Emilsdóttir og Steinunn Ylfa Harðardóttir.
Aðlafundurinn samþykkti eftirfarandi þrjár ályktanir um menntamál, auðlindamál og velfeðarmál.
Góð menntastefna
Aðalfundur Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu vill hrósa ríkisstjórn Íslands og stjórn LÍN fyrir hækkun grunnframfærslu til þeirra sem taka námslán um 20% samhliða ýmsum aðgerðum sem miða að því að tryggja þeim sem minnst hafa á milli handanna betra lífsviðurværi. Aðgerðirnar eru mikilvægar til
að auðvelda námsmönnum lífið í efnahagsþrengingunum sem þjóðin gengur í gegnum núna. Námsmenn eru oft þeir sem minnst hafa á milli handanna. Það verður að teljast góð og rétt forgangsröðun að þrátt fyrir gríðarlegan halla á ríkissjóði sé þessi umbót möguleg.
Það er allra hagur að fleiri setjist á skólabekk í stað þess að þiggja atvinnuleysisbætur. Það er augljóst að í ríkisstjórn sitja nú einstaklingar sem gera sér grein fyrir mikilvægi þess að hér sé vel menntuð þjóð sem saman getur híft sig upp og skapað sterkan grunn fyrir upplýstu þjóðfélagi, ríku af mannauði.
Ályktun um eignarhald á HS Orku
Aðalfundur Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu harmar ákvörðun meirihluta borgarstjórnar um að selja hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku til Magma Energy. Sú flýtimeðferð sem málið hefur fengið hjá meirihluta borgarstjórnar og nefndum er gríðarleg vonbrigði og ber keim af aðferðarfræði stjórnmálanna fyrir hrun frjálshyggjunnar. Það hefur sýnt sig að ákvarðanir teknar að illa ígrunduðu máli bjóða hættunni heim. Það er óásættanlegt að ekki hafi verið gerð áreiðanleikakönnun og lítil sem
engin trygging sé fyrir greiðslum fyrir hlutnum í HS Orku.
Það er eindreginn vilji Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu að auðlindir séu í þjóðareign. Lagaákvæði sem hindra framsal og leigu til langs tíma er nauðsynlegt. Á umbrotatímum sem þessum ætti það að vera forgangsatriði að vernda eignir þjóðarinnar og tryggja það að auðlindir séu nýttar í þágu
hennar. Það getur ekki talist hagstætt að Orkuveita Reykjavíkur láni Magma Energy stóran hluta kaupverðsins sem kúlulán til 7 ára sem getur að þeim tíma mergsogið fyrirtækið með arðgreiðslum og skilið það eftir enn skuldugra en það er í dag. Fundurinn er sannfærður um að ákvörðun meirihluta
borgarstjórnar sé stór mistök sem seint verði leiðrétt. Einnig þykir fundinum varasamt að gera enga skilmála varðandi sjálfbæra nýtingu á þessum auðlindum.
Ályktun um velferðar- og vinstristjórn
Aðalfundur Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu hvetur ráðherra í velferðarráðuneytum (heilbrigðis-, mennta- og félagsmála) til að sýna festu á þessum erfiðu tímum niðurskurðar og standa undir nafni sem velferðar- og vinstristjórn með því að byggja upp félagslega innviði Íslands.
Vinstri.is óskar nýrri stjórn velfarnaðar í störfum sínum og þakkar fráfarandi stjórn fyrir góð störf.

