Dagskrá landsfundar og praktísk atriði!
Landsfundur UVG verður haldinn á Hvolsvelli dagana 25.-27. september 2009. Allir félagar UVG hafa atkvæðisrétt á fundinum, en aðrir velunnarar UVG eru líka hjartanlega velkomnir.
Skráning fer fram í gegnum netfangið uvg@vinstri.is eða í síma 8475601 (Steinunn). Ekki er nauðsynlegt að skrá sig fyrir fundinn en það er æskilegt til að hjálpa uppá skipulagið, sérstaklega til að skipuleggja fararmáta.
Dagskrá fundarins:
Laugardagur
10:30 - Landsfundur hefst. Starfsmenn fundar kosnir og fundargögnum dreift
10:45 - Ávarp fráfarandi formanns
11:00 - Skýrsla stjórnar fyrir síðasta starfsár kynnt - umræður um skýrslu stjórnar
11:30 - Samþykkt ársreikninga
11:45 - Kynning á drögum að lagabreytingum, fyrirliggjandi ályktunum og endurskoðaðri stefnuyfirlýsingu.
12:30 - Matarhlé
13:15 - Hópastarf
14:00 - Pallborð
15:00 - Kaffihlé
15:20 – Almennar stjórnmálaumræður
16:20 – Afgreiðsla lagabreytinga
17:00 – Fundi frestað til morguns
18:15 - Sameiginlegur kvöldverður og landsfundargleði
Sunnudagur
12:30 - Landsfundur hefst að nýju með afgreiðslu stefnuyfirlýsingar og ályktanna.
14:30 - Kosning stjórnar
15:15 - Ávarp nýs formanns
15:30 - Landsfundarslit
Praktísk atriði!
Fundarmenn eru beðnir um að veita því athygli að frestur til að bera fram lagabreytingar er skv. lögum hreyfingarinnar 7 dögum fyrir landsfund. Hægt er að skila inn tillögum að lagabreytingum í gegnum netfangið uvg@vinstri.is. Frestur til að skila inn ályktunum er á sjálfum fundinum og sömuleiðis frestur til að tilkynna framboð til stjórnar.
Á landsfundarstaðnum Hvoli á Hvolsvelli er svefnpokapláss, eldhúsaðstaða og sundlaug. Landsfundargestir þurfa sjálfir að koma með dýnu og svefnpoka með sér. Verslun og veitingarstaðir eru í nágrenninu, en við hvetjum landsfundargesti til að kynna sér opnunartíma eða mæta með nauðsynjar.
Landsfundargestir eru beðnir um að geta þess við skráningu á landsfund – sem fram fer í gegnum netfangið uvg@vinstri.is og í síma 8475601 (Steinunn) – hvort að viðkomandi fer keyrandi eða vantar far, og hvaðan hann kemur. Ef þörf krefur pantar UVG rútu fyrir fundargesti, en raðar annars í fólksbíla. Ung vinstri græn munu eftir bestu getu veita bensínstyrki til þeirra sem koma langt að þar sem að fjárhagur ætti ekki að standa í vegi fyrir að félagar í UVG taki þátt í landsfundi. UVG verða að innheimta landsfundargjald til að standa straum að húsaleigu, en það er að þessu sinni afar vægt eða 2000 kr (niðurfelling landsfundargjalds í formi bensínstyrks kemur til greina fyrir þau sem koma langt að).

