Ung vinstri græn
Fréttir
  • Ungliðar á landsfundi

Ungliðar áberandi á landsfundi

23.3.2009

Félagar í Ungum vinstri grænum voru áberandi á landsfundi Vinstri grænna sem fór fram í Reykjavík um liðna helgi. Auður Lilja Erlingsdóttir, fyrrverandi formaður UVG, var kjörin í stjórn flokksins með glæsibrag. Þá voru sex aðrir félagar UVG kjörnir í flokksráð, þar á meðal Steinunn Rögnvaldsdóttir, formaður hreyfingarinnar, sem varð fjórða efst í kjörinu.

Þær ályktanir og lagabreytingar sem stjórn Ung vinstri grænna lagði fyrir landsfundinn voru allar samþykktar án mikilla breytinga. Þar ber helst að nefna ályktun um jafnrétti og frelsi í trúmálum. Hún fól meðal annars í sér að stefna skuli að aðskilnaði ríkis og kirkju, en málið hefur lengi verið baráttumál UVG.  Þá var ályktun UVG um að Vinstri græn hafni samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn að loknum kosningum og myndi félagshyggjustjórn samþykkt með lófaklappi.

Senda


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica