Kjósum ungt fólk á Alþingi!
Á sama tíma mælast Vinstri græn með stuðning 41% stuðning kjósenda 29 ára og yngri, sem er ótrúlegur árangur! Það er bráðnauðsynlegt að viðhalda þessum árangri og við gerum það einungis með því að sýna ungu fólki að við ætlum að setja fram lista með fulltrúum þeirrar kynslóðar líka.
Í dag fer fram forval í Reykjavík og hefur kjörskrá verið lokað. Um næstu helgi er forval í Kraganum, þar er hægt að skrá sig í svæðisfélagið á meðan kosningu stendur, og póstkosning fer fram í Norðvesturkjördæmi en þar eru einmitt fjölmargir ungliðar í framboði. Kjörskrá þar hefur verið lokað og atkvæðaseðlar skulu póstlagðir eigi síðar en á þriðjudaginn í næstu viku.
Í ljósi þess að í dag er kosið í forvali VG í Reykjavík skal tekið fram að eftirfarandi ungliðar gefa kost á sér í forvalinu:
Andrés Ingi Jónsson (29 ára)
Auður Lilja Erlingsdóttir (29 ára)
Brynja Björg Halldórsdóttir (18 ára)
Hörður Þórisson (21 árs)
Kristján Ketill Stefánsson (30 ára)
Þetta er ákall til allra, ungra sem aldinna: Samfélagið þarfnast ungs fólks með nýjar hugmyndir og annars konar reynslu á þingi. Gerum allt sem er í okkar valdi fært til að VG bjóði fram lista í vor sem endurspegla þjóðina.
Kjósum ungt fólk á Alþingi!

