Ung vinstri græn
Fréttir

Ályktun vegna landsdóms

18.1.2012

Ung vinstri græn lýsa yfir stuðningi sínum við málshöfðun á hendur fyrrverandi forsætisráðherra. Meðferð málsins fyrir Landsdómi er nauðsynlegur liður í uppgjöri við hrunið og aðdraganda þess.

Jafnframt lýsum við yfir óánægju okkar með að einungis einn af þeim ráðherrum sem ábyrgð báru þegar hrunið reið yfir og í aðdraganda þess, hafi verið sóttur til saka, enda teljum við að þjóðin eigi rétt á að æðstu fulltrúar sínir séu ábyrgir gjörða sinna.

Þegar gera á upp þá atburði sem á undan hafa gengið og grunur leikur á að ráðherrar hafi sýnt sig glæpsamlega vanhæfa til að sinna skyldum sínum er ólíðandi að sitjandi valdhafar noti stöðu sína til að hlífa flokkssystkinum sínum frá eðlilegri úrlausn dómstóla og hindra þannig það réttlæti sem þjóðin gerir kröfu til.

Það er skrumskæling á sannleikanum að málsóknin gegn fyrrverandi forsætisráðherra sé geðþóttaákvörðun afmarkaðs hluta ríkisstjórnarinnar, enda var málsmeðferðin samþykkt af Alþingi og komu þar allir þingmenn að. Orðræðan um pólitískar ofsóknir, sem kemur nú frá þingmönnum sem sjálfir voru í innsta hring þeirra sem stóðu að hruninu, er fátt annað en tilraun til að koma í veg fyrir að eðlileg rannsókn á hruninu fari fram og réttlætið nái fram að ganga.

Senda


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica