Í gapastokknum: Guðrún Axfjörð Elínardóttir
Í gapastokknum að þessu sinni er Guðrún Axfjörð Elínardóttir. Hún situr í 5. sæti á lista VG í Suðurkjördæmi.
Nafn: Guðrún Axfjörð Elínardóttir
Aldur: 24 ára
Uppruni og núverandi búseta: Strandasýsla og Landeyjar, er nú búsett í Reykjavík
Hvað á að gera við Sjálfstæðisflokkinn? Þjóðnýta hann með velferð og framfarir mannkyns í huga. Hefur til dæmis nokkurn tímann verið athugað hvort að íslenskur stjórnmálaflokkur geti þrifist á Mars?
Kýr eða belja? Kýrskýr
Kjöt eða gras? Bæði betra
Hvað er það fyrsta sem þú myndir beita þér fyrir á þingi? Þyngri dómum í kynferðisbrotamálum og auknum réttindum námsmanna á öllum skólastigum
Uppáhalds róttæka tónlist? Ramones
Hvar er Hannes Hólmsteinn? Það er komið vor, þannig að hann hlýtur að vera heima, búinn að telja gróðann og farinn að pússa grillið...
Hvernig sýnir þú umhverfisvernd í verki? Ég endurvinn og geng vel um landið mitt
Hvað er mesta gróðærishneysklið? Örugglega ekki komið fram að fullu. Verstur er náttúrulega feiti reikningurinn sem dæmist á mig og þig og börnin mín og börnin þín og börnin þeirra og...
Hvaða manneskju úr mannkynssögunni myndirðu vilja bjóða í afmælið þitt? Christopher McCandless (Kvikmyndin Into the Wild er gerð eftir sögu hans)
Af hverju vinstripólitík? Af því að ef ég get lagt mitt af mörkum við það að bæta samfélagið okkar, geri ég það, og þá er vinstripólitík eina leiðin!

