Ung vinstri græn
Fréttasafn

Í gapastokknum: Karólína Einarsdóttir

  • Karólína Einarsdóttir

Í gapastokknum að þessu sinni er Karólína Einarsdóttir. Hún situr í 9. sæti á lista VG í Suðvesturkjördæmi.

Nafn: Karólína Einarsdóttir
Aldur: Er enn 28
Uppruni og núverandi búseta: Fædd og uppalin í Litlu Moskvu bý nú í Kapitalinu Kópavogi
Hvað á að gera við Sjálfstæðisflokkinn? Þar sem ekki er hægt að endurnýta hann verðum við líklega að urða hann og vona að rotverurnar vinni vel á honum
Kýr eða belja? Kýr
Kjöt eða gras? Kjöt með grasi
Hvað er það fyrsta sem þú myndir beita þér fyrir á þingi?
Menntun til sjálfbærrar þróunar
Uppáhalds róttæka tónlist? Hmm, á enga uppáhalds tónlist
Hvar er Hannes Hólmsteinn? Já, hvar er hann???
Hvernig sýnir þú umhverfisvernd í verki? Ég flokka ruslið mitt, nota taubleiur, reyni að endurnýta sem mest og þríf sjaldan (til að spara sápuna)
Hvað er mesta gróðærishneysklið? Að við skildum hafa selt bankana á slikk og þurft að kaupa þá aftur fyrir svo mikið fé að við vitum líklega aldrei hve mikið það er
Hvaða manneskju úr mannkynssögunni myndirðu vilja bjóða í afmælið þitt? Ekki viss um að ég myndi vilja bjóða einhverri manneskju sem ég þekki ekki persónulega í afmælið mitt
Af hverju vinstripólitík? Af því að allir eiga að sitja við sama borð, líka þeir sem á eftir koma

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica