Ung vinstri græn
Fréttasafn

Í gapastokknum: Kári Gautason

  • Kári Gautason

Í gapastokknum að þessu sinni er Kári Gautason. Hann situr í 11. sæti á lista VG í Norðausturkjördæmi.

Nafn: Kári Gautason
Aldur: 20 ára
Uppruni og núverandi búseta: Er frá Grænalæk í Vopnafirði en bý á Akureyri um þessar mundir
Hvað á að gera við Sjálfstæðisflokkinn? Þarf eitthvað að gera við hann, hann virðist vera að falla saman vegna spillingar alveg hjálparlaust.
Kýr eða belja? Kýr, ég veit fátt verra en að tala illa um þessar dásamlegu skepnur
Kjöt eða gras? Kjöt
Hvað er það fyrsta sem þú myndir beita þér fyrir á þingi? Leita leiða til að afnema kvótakerfi í landbúnaði og sjávarútvegi. Til að tryggja nýliðun í greinunum
Uppáhalds róttæka tónlist? Rage against the Machine og svo er Poetrix að koma sterkur inn
Hvar er Hannes Hólmsteinn? Hann er líklegast að reyna að vinna sig útúr því að heimsmynd hans féll saman og safna saman og eyða öllum sínum skrifum síðastliðin 20 ár.
Hvernig sýnir þú umhverfisvernd í verki? Ég geng vel um náttúruna og kaupi alltaf Fair Trade ef ég get, vantar samt meiri valkosti í þeim efnum á Íslandi.
Hvað er mesta gróðærishneysklið? Af nógu að taka, en mér finnst alveg ömurlegt hvernig auðmenn keyptu upp góð íslensk fyrirtæki og settu rændu þau innan frá (Eimskip og Sparisjóðirnir koma upp í hugann)
Hvaða manneskju úr mannkynssögunni myndirðu vilja bjóða í afmælið þitt? Ég hefði viljað hitta Jesús Kr. Jósefsson
Af hverju vinstripólitík? Því að ég tel það sjálfsagt en ekki afleiðingalaust að fólk sé hærra skrifað en peningar

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica